11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (2689)

96. mál, þjóðmenjasafn Íslands

Framsögumaður minni hlutans (Hálfdan Guðjónsson):

Eg vil að eins skjóta inn örfáum orðum. Háttv. 2. þm. Rangv. (E. J.) sagði, að ekki mundi svara kostnaði að breyta húsrúminu. Það yrði svo dýrt. En er ekki munur á að borga út eitt skifti fyrir öll, eða stofna nýtt embætti með nýjum, árlegum framlögum.

Háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) hefir misskilið — eða ef til vill ekki viljað skilja — orð mín um að »loka niður« lauslegustu munina, til þess að ekki væri hætt við, að þeir yrðu bornir burt. Eg átti auðvitað ekki við, að þá skyldi loka niður í kistum með þykkum lokum, heldur að þeir væri hafðir á borðum eða í skápum með gleri fyrir, svo að hægt væri að sjá þá eigi að síður. Það er meira að segja orðið alvenja erlendis að búa þannig um lausa muni — já, þótt fornir séu.

Þetta hugði eg að háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) vissi, annar eins safnfræðingur, og það því heldur, sem slík aðferð hefir verið viðhöfð við náttúrugripasafnið hér í Rvk. og gefist þar vel.