11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (2690)
96. mál, þjóðmenjasafn Íslands
Pétur Jónsson:
Við atkv.gr. þá, sem nú á fram að fara mun eg greiða atkv. mitt móti þessu frv., ekki af því að eg vilji ekki styrkja þetta safn með fjárframlagi, eins og með þarf, heldur af því að mér skilst á framsm. að þetta frumv. verði hvort sem er einungis bráðabirgða umbót. En bráðabirgðaumbætur er alveg eins hægt að gera með aukinni fjárveiting á fjárlögunum. —