16.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í B-deild Alþingistíðinda. (2694)
63. mál, gagnfræðaskólinn á Akureyri
Gunnar Ólafsson:
Eg skal taka það strax fram, að eg er á móti þessu frumvarpi, og það af þeirri ástæðu, að eg álít það óþarft, að fjölga föstu kennurunum við Akureyrarskólann og hækka laun kennaranna, en hvorttveggja þetta er tilgangur frumvarpsins.
Háttv. 6. kgk. þm. kom með heillangan reikning um þetta mál, en sá reikningur sannfærði mig ekki um að nauðsyn væri að bæta föstum kennara við. Hann tók það fram, að 1903 hefði ekki verið fé til þess að hafa kennarana fleiri, og sé eg ekki að ástæður séu betri fyrir hendi nú, eða frekari ástæður til þess að ausa út fé. Það er ísjárvert, að búa til ný og ný embætti við svona skóla, því að það gæti allt af komið að því, að aðsókn minkaði að honum, og þá yrði vont að hafa of marga fasta kennara. Eg vildi þessvegna miklu heldur að tímakennurum væri bætt við. Að halda því fram, eins og háttv. þm. gjörði, að tímakennarar fengjust ekki á Akureyri, er óefað hin mesta fjarstæða, að minsta kosti ber það ekki vott um mikla eklu á kennurum þar nyrðra, að sjálfur skólastjórinn skuli geta setið næstum helminginn af skólaárinu á þingi hér suður í Reykjavík.
Hins vegar þykir mér það undarlegt og þess vert að á það sé minst, að einmitt þessi háttv. 6. kgk. þm., sem nýlega hefir ásamt félögum sínum hér lagt mikið kapp á að losa landsjóð við réttmætar tekjur, að hann skuli nú rétta höndina niður í kassann eftir fé handa þeirri stofnun, er alls ekki þarf þess nú sem stendur; það bætir að minsta kosti ekki úr því, sem eg nefndi áðan. Eg skal svo ekki fjölyrða um þetta mál en að eins geta þess, eins og eg tók fram áðan í byrjun ræðu minnar, að eg er á móti því.