02.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
14. mál, meðferð skóga, kjarrs o. fl.
Jens Pálsson:
Breyt.till. mín er fólgin í því, að fella burtu allan fyrri hluta 7. gr., sem mér þykir mjög gagnslaus. Í lögum á annað hvort að banna eða að bjóða. En orðin »kosta kapps um« og »minst« eru svo óákveðin, að aðhald að hlýðni við þau verður ómögulegt; þau verða dauður bókstafur. Þau eiga heima í leiðarvísi um meðferð skóga, en ekki í lögum. Aftur er seinni hluti greinarinnar góður og getur vel staðið sem sjálfstæð grein. Hann er nægileg trygging fyrir því, að ekki verði níðst svo á skógum, að þeir eyðileggist. Skógræktarstjóri og skógarverðir eiga að athuga, hvort skógur sé nokkurstaðar ofbeittur, svo að eyðileggingarhætta sé samfara, og eiga þá að gefa stjórnarráði skýrslu um það, og verða þá gerðar nauðsynlegar ráðstafanir. — Mest herti það á mér með breyt.till. þessa, að eg þekki svæði þar sem fé verður að ganga sjálfala á slíku landi, enginn heyskapur er handa fullorðnu fé, t. d. Hraunin í Garðahreppi. Þar verður féð að ganga á kjarrlendi þegar niðri nær, annað land til beitar er þar ekki um að gera; og eigi verður þar aflað heyfóðurs handa rosknu fé svo nokkru nemi, því öll býli þar eru engjalaus, og engjar ekki fáanlegar í grend. Þegar þar tekur fyrir vetrarbeitina verður að fóðra beitarfénaðinn á kornmati. Um jarðir í Þingvallahrauni má eg og fullyrða, að þar er ekki unt að taka svona ráðleggingar til greina.
Eg álít réttast að fella burtu allan fyrri hluta greinarinnar; en bót er þó að láta orðin »á Vestfjörðum« o. s. frv. falla burtu. Sömuleiðis er eg því meðmæltur, að orðið »einkum« falli burtu.