22.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í B-deild Alþingistíðinda. (28)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Ráðherra (B. J.):
Eg á 2 br.till. á þgskj. 570 við 15. gr. 2. b. og 15. gr. 3. b. Sú fyrri fer fram á að hækka fjárveitinguna til aðstoðar o. fl. við landskjalasafnið úr 1200 kr. upp í 1600 kr. á ári. Hér er um dýrmætar eignir að ræða, og því áríðandi að eftirlitið og umsjónin sé í góðu lagi. Landsbókasafnsins gæta 3 menn, en landskjalasafnsins að eins 1, og þó eru herbergin á skjalasafninu fleiri. Skjalaverðinum veitir því ekki af þeirri fjárhæð, sem hér er farið fram á, til þess að kaupa sér nægilega aðstoð.
Hin breytingartill. er um að hækka sams konar styrk til forngripasafnsins úr 600 kr. upp í 800 kr. Þetta munar litlu, en getur þó orðið til þess, að fremur verði hægt að fá hæfan mann til þess að vera forngripaverði til aðstoðar við eftirlitið, þá er safnið er til sýnis, en honum er það gjörsamlega ókleift einum að gæta þess, að ekkert sé skemt eða fari forgörðum, en hér stendur alveg eins á og við landsbókasafnið, að hér er um alt of dýrar eignir að ræða, til þess að láta þær skemmast eða týnast fyrir eftirlitsskort. Eg vona því, að hin háttv. deild rýmki það til um, að söfnunum sé vel borgið.