24.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (287)
15. mál, námulög
Framsögumaður (Steingrímur Jónsson):
Eg vona að hinn háttv. meiri hluti fari ekki eins með þetta mál og næsta mál á undan, að hann geri það að flokksmáli og drepi það skilmálalaust.
Frumv. þetta er hingað komið frá háttv. Nd. og er að mestu samhljóða að efni hinum gildandi námulögum frá 22. nóv. 1907; breytingamar eru hvorki margar né stórvægilegar. Nýja frumv. er bygt á sömu meginreglum sem gildandi námulög, að það skuli aðeins gefa lög um námur á opinberum eignum og landsjóðseignum og kirkjueignum, og að gera það sem auðveldast að nota námur. Framvarpið er aðallega í 2 atriðum frábrugðið námulögunum frá 22. nóv. 1907. Önnur aðalbreytingin er sú, að þar sem námulögin frá 22. nóv. 1907 gáfu námueiganda rétt til »fimtungs reksturs«, fer þetta frumv. fram á, að í þess stað komi skattur, er sé 50 kr. til jarðareiganda og 10 kr. til ábúanda á ári hverju, fyrir hvern námuteig.
Hin aðalbreytingin er, að frestirnir eru lengdir nokkuð og gerðir ákveðnari.
Eftir lögunum frá 11. nóv. 1907 mátti veita frest eftir rökstuddri beiðni, en þó ekki nema rúmlega 1 ár í senn.
Eftir frumv. þessu fer lengd frestsins eftir því, hve langt náman liggur frá sjó.
Báðar þessar breytingar telur nefndin til bóta og felst því á þær. En auk þeirra er enn ein stór breyting á frv., og hún er sú, að námuteigur er stækkaður úr 10000 ? metrum upp í 100000 ? metra. Nefndin gat fallist á að hér á landi væri 10000 ? metrar of lítið, enda byggist þessi breyting mest á erindi frá formanni Námufélags Íslands, er færir glögg rök að þessari beiðni sinni. En auk þessa gerir frv. ráð fyrir að námurekandi geti ráðið, án þess honum sé nokkur takmörk sett í því efni, hvernig teigurinn er í laginu. Á þetta getur nefndin ekki fallist. Stækkunina telur hún réttmæta, en hins vegar vill hún, að því er lögunina snertir, að svo sé ákveðið, að teigurinn megi aldrei vera minna en 100 metrar á breidd, og getur hann þá í mesta lagi orðið 1000 metrar á lengd. Nefndin játar að vísu, að það hefir ekki mikla praktiska þýðingu, hvort þessi breytingartillaga verður samþykt eða ekki, en henni fanst þó réttara, að einhver takmörk væra sett, að því er lögun teiganna snertir, sérstaklega þegar þess er gætt að finnandi getur átt tilkall til 2 teiga, og gæti hann þá t. d. haft þá 20 metra á breidd og 10000 metra — eða töluvert á aðra mílu — á lengd, en nái tillaga nefndarinnar samþykki, geta báðir teigarnir til samans þó aldrei orðið nema 2000 metrar á lengd.
Eftir námulögunum frá 1907, má ekki án leyfis jarðarábúanda leita að málmi í túnum eða öðru ræktuðu landi, eða rétt hjá húsum eða öðrum mannvirkjum, nema með samþykki ábúanda. Þessu er breytt í frumv., en nefndin vill að á slíkum stöðum sé málmleit algerlega bönnuð, nema með samþykki ábúanda, og kemur með breytingartillögu í því efni. Þetta hefir heldur ekki mikla praktíska þýðingu, en nefndin taldi þó réttara að tryggja ábúendum að slíkur gröftur færi ekki fram að þeim nauðugum.
Breytingartillagan við 17. gr. miðar að því einu, að gera greinina skýrari, að taka það fram, að það væri að eins fyrir það svæði, sem hús standa á, er ætti að greiða 5 aura gjald af hverjum ferhyrnings metra, enda væri gjaldið alt of hátt, ef það tæki líka til óbygðs svæðis.
Að lokum skal eg geta þess, að nefndin hefir borið sig saman við aðal flutningsmann málsins í Nd., og hefir hann fallist á breytingartillögur hennar, enda myndu þær ekki verða málinu neinn þrándur í götu í Nd. Vona eg því, að bæði breytingartillögurnar og frumv. í heild sinni verði samþykt af þessari háttv. deild, enda hefir mál þetta verið vel og rækilega undirbúið, og er það meira en sagt verður um flest þau mál, er þetta þing hefir til meðferðar.