20.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

16. mál, aðflutningsbann

Kristinn Daníelsson:

Eg ætla að eins að víkja nokkrum orðum að því atriði, hvort skipa skuli nefnd í málið. Það atriði þarf að útkljá fyrst.

Háttv. 4. kgk. þm. talaði um að þetta væri merkilegt mál. Það tek eg fyllilega undir. Það er sannarlega eitt hið allra merkilegasta mál, sem komið hefir nokkurn tíma fyrir alþingi. Og eg get bætt því við, að það er of merkilegt mál til þess, að nokkuð megi gera, sem heft gæti framgang þess á þessu þingi, því það er krafa þjóðarinnar að það gangi fram. Því get eg ekki annað en verið á móti því að skipa nefnd í málið, því það gæti vel stofnað því í þann háska, að það dagaði uppi á þinginu. Enda er undirbúningur málsins á þinginu sannarlega svo mikill og góður, að það ætti ekki að vera nein þörf nefndar í málið hér. Það hefir engu máli á þessu þingi verið fylgt með jafnmikilli eftirtekt bæði af þingmönnum og öðrum. Eg þori því að fullyrða, að háttv. þingmenn þessarar deildar hljóti að vera svo vel kunnugir málinu, að þeim er innan handar að koma með breytingartillögur, ef þeir óska þess. Mér er líka kunnugt um það, að málið hefir verið borið undir einn þeirra deildarmanna, er mundu verða kosnir í þessa nefnd, meðan málið var til meðferðar í neðri deild, svo að hann getur ekki verið málinu ókunnugur.

Af þessum ástæðum sýnist mér engin þörf að setja málið í nefnd, og þar sem það á hina hliðina getur verið málinu hættulegt, þá verð eg að leggja eindregið á móti nefndarskipun.