22.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (31)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Jens Pálsson:

Þar sem þessi tillaga er komin til umræðu á undan öðrum, vil eg fara um hana nokkrum orðum í áframhaldi af því sem háttv. 3. kgk. þm. sagði. Háttv. framsögum. sagði, að við hefðum kennaraskóla hér og þar gæti þessi maður aflað sér mentunar. En eg vil taka það fram, að þó þessi skóli sé hér nú nýstofnaður, þá er ekki kent annað né meira á honum en var í kennarafræðslunni í Flensborg, og auk þess er skólinn nýbyrjaður og hlýtur því að vera æði ófullkominn enn. Enda er hér ekki um þess konar skólanám að ræða. Þessi maður hefir með »energi« og dugnaði aflað sér mentunar, fyrst á Möðruvallaskóla og svo í kennaradeildinni í Flensborg, og síðan hefir hann lagt stund á að menta sig upp á eigin spýtur í sínum sérstöku fræðigreinum. Nú langar hann til, sér til enn meiri þroskunar, að vera eitt ár á kennaraháskólanum í Höfn, og ætlar sér þar aðallega að afla sér frekari mentunar í þeim greinum, sem hann hefir lagt stund á hér. Ég skal geta þess, að eg hefi aldrei í neinum skóla heyrt aðra eins fyrirmyndar-»examination« eins og hjá honum í eðlisfræði og Íslandssögu í efsta bekk barnaskólans í Hafnarfirði í vor sem leið, og aldrei vitað börn á því reki vera eins prýðilega vel að sér, eins og þau voru hjá honum í þetta skifti. Vitanlega gæti, frá sjónarmiði barnaskólans, verið óhyggilegt að mæla með þessum styrk, því mjög líklegt er, að hann mundi verða kvaddur þaðan til annara hærri skóla. En það dugar ekki að sjá í það, þó við mundum sjá mjög eftir honum, ef hann færi frá skólanum. Hér er maður, sem er reyndur að svo góðu, að eg finn skyldu hjá mér til að mæla með honum eins vel og mér er unt, þó eg eigi það á hættu að missa hann frá skólanum fyrir þá sök, og eg vil jafnvel fara bónarveg til hinnar háttv. deildar og biðja hana, að taka mig trúanlegan í þessu, að eg segi satt og rétt til um þennan mann, um leið og eg mæli með þessum styrk til hans.