22.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Sigurður Hjörleifsson:

Eg á litla breyt.till. á þgskj. 548, sem fer fram á 500 kr. styrk hvort árið til Þorkels kennara Þorkelssonar til hverarannsókna. Þessi maður er nú 1. kennari við Akureyrarskólann, en hefir undanfarið verið assistent við efnafræðisdeild fjöllistaskólans í Höfn, og hefir notið mikilla vinsælda þar. Hann er yfirlætislaus vísindamaður og hefir því ekki haft sig mikið frammi til að fá þennan styrk. En af því að samnefndarmenn mínir gátu ekki verið mér samdóma um að leggja með styrknum, þá hefi eg komið með þessa breyt.till. sjálfur. Eins og kunnugt er, er Ísland auðugra að hverum en nokkurt annað land í heimi, og er því mikil ástæða til að leggja fé til rannsókna á þeim, því að slíkar rannsóknir eru taldar mjög þýðingarmiklar fyrir vísindin, ekki síst eftir að uppgötvað hefir verið, að hverahrúður er auðugt af hinu nýfundna efni »radium«. Það er 2000 sinnum dýrara en gull, og mjög lítið er til af því í heiminum. Þorkell hugsar sér að vinna að þessum rannsóknum í sumarleyfinu, en treystir sér ekki til að standast þann kostnað, er þær mundu hafa í för með sér, með sínum lágu launum. Hugmynd hans er að fá nákvæmt yfirlit og uppdrátt yfir hverina hér á landi. Enda leggja ekki Íslendingar svo mikið til almennra vísinda, að hægt sé að segja, að styrk þessum verði illa varið.

Viðvíkjandi skáldunum aftur á móti skal eg láta í ljósi það álit mitt, að ekki getur verið um það að ræða, að þeir, er úthluta skáldstyrkjunum, leggi neinn dóm á skáldin eða fari að meta þau til gildis. Og væri slíkt álit hið fávíslegasta. Heldur skiftir hitt meira máli: sumir gefa sig eingöngu við skáldskap, aðrir hafa hann í hjáverkum að eins; og munar þetta allmiklu. Hér er þá einmitt um slíkt að ræða, eftir þeim styrktillögum, sem fram hafa komið, hvort álíta skuli að styrkþegarnir gefi sig við skáldlistinni allir eða að eins hálfir. Það hefir undanfarið margt verið talað um bitlinga þá, sem til skáldanna renni. Samt sem áður ætti einmitt sú tegund fjárveitinga að vera hin lang-»popúlerasta«; enda ætti og engin fjárveiting að nema nær sjálfri alþýðu manna í heild sinni heldur en þessi. Það er að efla þjóðina sjálfa, insta kjarna hennar og tilfinningu fyrir sjálfri sér, að efla skáldin hennar, þar sem það eru einkum og sér í lagi skáldin, sem haldið hafa þeim neista þjóðernisins vakandi niður í gegn um aldirnar, sem nú er óðum að glæðast. Og það sem fyrri skáldin voru samtímismönnum sínum og eftirkomendum, það eru einnig nútímans skáld oss og vorum niðjum En í enn þrengri merkingu má skáldstyrkina telja miklu alþýðlegri fjárveitingar en flestar aðrar, því það er alþýðan sjálf í eiginlegustu merkingu sem þeirra nýtur drýgst að lokum. Þó hugsjónir, andi og áhrif skálda vorra nái til allra, bæði lærðra og leikra, og að sönnu sýnu jafnara til lærða flokksins (þar sem fleiri af skáldum þeim, sem af hafa borið, hafa lærðir verið), þá er hitt enginn vafi, að enn hjartfólgnari hafa jafnan íslenzk ljóð orðið íslenzkum alþýðumönnum en lærðu mönnunum; og sést það af því (hvað sem öðru líður) að hvergi í heimi eru jafnmörg alþýðuskáld og á voru landi. Lærðu mennirnir kunna útlend mál og geta notið og njóta skáldverka margra erlendra þjóða. Alþýðumaðurinn aftur á móti getur ekki haft þeirra not; og er þá sýnilegt, sem eg drap á, að einmitt þess hjartfólgnari verða honum skáld sinnar eigin þjóðar, sem hann skilur. Það eru skáldin fremst í flokki, sem efla og eflt hafa þjóðræknina hjá Íslendingum og þjóðarmetnaðinn hjá alþýðunni. Má því telja engu fé betur varið en því, er til skáldanna er veitt; og væri það hin hættulegasta þröngsýni, að skera þau framlög við neglur sér.