18.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

18. mál, borgaralegt hjónaband

Sigurður Stefánsson:

Eg er samdóma háttv. 5. kgk. þm. um það, að þetta atriði er ekki þess vert, að láta málið koma í sameinað þing. Og eg vil bæta því við, að mér finst málið í heild sinni ekki þess vert, því að eg get ekki séð að það sé mikil réttarbót falin í þessu frumvarpi. Því væri eg helzt með því að fella það alt.