26.04.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (335)
18. mál, borgaralegt hjónaband
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Þetta frumv. kom hingað breytt aftur frá því sem það fór héðan, og var útbýtt hér 9 mínútum áður fundur byrjaði. Nd. er með öðrum orðum algjörlega afskorin frá að geta gert breytingu við frumv. Veit eg ekki hvað er gjörræði gagnvart Nd., ef ekki þetta.