21.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (353)
20. mál, fræðsla barna
Framsögumaður (St. Stefánsson, 6. kgk.):
Í 6. gr. laganna um fræðslu barna frá 1907 er gert ráð fyrir föstum skólum, og öllum börnum gert að skyldu að sækja þá skóla. Þó er samt gert ráð fyrir því jöfnum höndum, að undantekningar megi gera, þegar svo stendur á, að skólastjóri álítur að hlutaðeigandi barn muni njóta jafn góðrar fræðslu í heimahúsum sem í sjálfum skólanum. En hins vegar eru alls engin ákvæði um það, að börn megi sækja aðra skóla undanþágulaust. Aðal efni þessarar breytingar er það, að stjórninni veitist leyfi til að löggilda skóla, sem einstakir menn hafa stofnað, á þann hátt, að börn þau, sem þessa skóla sækja, væru undanþegin því, að sækja um undanþágu frá hinum lögboðnu skólum. Nefndin álítur það og á skorta núgildandi lög, að þetta atriði standi þar; leggur hún til að breytingin komist á óbreytt, og yrði hún þá í rauninni að eins viðauki við lögin.
1. gr. er breyting á 15. gr, fræðslulaganna. Hér er farið fram á, að fresturinn sé lengdur til 1. jan. 1912; þó eg fyrir mitt leyti álíti það óþarfa, hefir nefndin ekki séð ástæðu til að hafa á móti því, úr því Nd. hefir samþykt það. Við það verður fresturinn rýmri; en annars álít eg, að hann hefði verið nógu langur til 1. jan. 1910. Svo er önnur almenn breyting við 30. gr. laganna. Það er viðvíkjandi byggingu skólahúsa; og skal eftir því hreppsnefnd eða bæjarstjórn sjá um byggingu skólahúsanna, en skólanefndir taka við þeim og sjá um þau, þegar þau eru komin upp. Breytingartillagan vill girða fyrir það, að ágreiningur komi í slíkum tilfellum, að skólanefnd vilji annað en hreppsnefnd; og er það sanngjarnt að hreppsnefnd ráði byggingunni, þar sem hún leggur féð fram; og er það fram tekið í breytingartillögunni. Nefndin hefir því aðhylst þessa breytingartillögu með nokkrum orðabreytingum. Við auka mætti nokkrum orðum, sem tækju skýrar fram um þetta atriði. Annars eru hér strangari kröfur settar um teikningar að skólahúsum, en áður var, eða réttara sagt, að framvegis skuli skólahús gerð eftir teikningu og lýsingu, sem yfirstjórn fræðslumála samþykkir. Yfirleitt finst mér breytingarnar vera til bóta, þar sem í þeim er ólíkt skýrar fram tekið um þessi atriði en áður var; og má segja að óþarfi sé að nákvæmar sé fram tekið en þar er gert. Þó býst nefndin við að koma með breytingartillögu við 3. umræðu. — í heild sinni býst eg við að deildin fallist á frumvarpið og þær breytingar sem nefndin hefir gjört.