22.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (36)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Framsögumaður (Sig. Stefánsson):
Hvað snertir br.till. um að styrkja Jóhann skáld Sigurjónsson, þá skal eg taka fram, að mér dettur ekki í hug að rýra þennan mann að neinu leyti; eg veit að hann er af góðum ættum, en hinsvegar sýnist mér að beri að gæta þess, að hann hefir ritað á dönsku. Mér sýnist öll vorkunn til þess að styrkja menn, sem rita á íslenzka tungu, en sýnist okkur ekki farast að vera að styrkja menn í öðrum löndum, enda þótt þeir hafi verið lofaðir í erlendum blöðum. Hinir, sem rita á íslenzku, eru íslenzkir söngfuglar, sem vér skiljum og þykir vænt um. Og úr því að háttv. 4. kgk. taldi manninum það til gildis, hvað hann skrifaði vel dönsku, þá þætti mér rétt að Danir styrktu manninn eitthvað.
Eg hirði svo ekki að svara mörgum orðum þeim almennu athugasemdum, sem háttv. 4. kgk. talaði um fjárhaginn. Eg vildi auðvitað helzt að þingið skildi svo við fjárlögin, að tekjuafgangur gæti orðið, en eg vil hinsvegar ekki draga svo mikið saman seglin, sem háttv. þm. talaði um.
Það atriði, sem háttv. þm. Strand. talaði um, ójöfnuðinn milli póstafgreiðslumannanna hér í Reykjavík, skal eg ekki fjölyrða mikið um; en hann getur tæplega verið mikill, úr því að póstmeistari hefir hvergi um það talað. Og mér sýnist þessi maður hefði fyrst átt að snúa sér til póstmeistarans, og koma þá leið til alþingis; hitt er óviðkunnanlegt, að ganga alveg framhjá þeim manni, sem mest hefir með þetta mál að gera, og bezt þekkir til.
Eg skal svo ekki þreyta hina háttv. deild á lengri ræðu. Atkvæði skera úr, og hvort sem haldin er tólf álna löng ræða eða ekki, þá er ekki líklegt að breyttust skoðanir manna.