27.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (365)
21. mál, vígslubiskupar
Framsögumaður (Sig. Stefánsson):
Eg er sammála hæstv. ráðherra um það, að frumv. er þarft, og eins hitt, að það væri heppilegra að breyta »aðalbiskup« í »biskup landsins«.
Eg hélt ekki að frumv. þetta mundi orsaka neinn hvell hér í deildinni, en þó hefir sú raunin orðið á. Háttv. 5. kgk. þm. er ekki láandi, þó að hann fyllist gremju út af slíku frumv. sem þessu, úr því að hann álítur sjálft biskupsembættið algerlega óþarft. Hans skoðun á þessu er nokkuð einstæð, og það eru aðrir, sem líta svo á, að þetta embætti sé mjög þarft, og að hitt væri mjög illa farið, ef störf biskups væru falin stjórnarráðinu. Það er ekki æskilegt, að slík störf séu falin mönnum, sem ekki hafa neinn áhuga á þeim, og jafnvel geta verið alveg ókirkjulegir og jafnvel ókristilega sinnaðir menn, en svo gæti vel farið, ef stjórnarráðið hefði þau með höndum. Enda gæti og stjórnarráðið ekki bætt við sig þessum störfum, án þess að fá þá jafnframt aukið skrifstofuféð.
Það er misskilningur, að hér sé verið að fara fram á stofnun nýrra embætta, sem er og auðséð, þar sem engin laun eru ákveðin nema þessi litla þóknun til vígslukostnaðar. Aðaltilgangurinn er að eins að tryggja það sem bezt, að biskupsvígsla geti jafnan farið fram hér á landi, framkvæmd af biskupsvígðum manni. Háttv. 5. kgk. þm. færði það einnig til á móti frumv., að vér hefðum komist af án vígslubiskupa hingað til, og þörfin mundi því ekki vera mikil. Þetta er léttvæg ástæða; þörfin getur verið mikil alt að einu. Vér höfum líka komist af án lagaskóla og háskóla, og munu þó margir ætla fulla þörf þeirra, meðal annara háttv. 5. kgk. þm.
Sami háttv. þm. hélt því fram, að hér á landi væri ekki nema ein dómkirkja. Þetta er ekki rétt; það er ein dómkirkja hér í Reykjavík og önnur á Hólum. Og þessi merkilega kirkja, Hólakirkja, er vel þess verð, að þingið geri sitt til að auka veg hennar með því, sem hér er farið fram á, að skipa vígslubiskup fyrir norðurland. Vígslubiskupar eiga ekki einungis að vígja biskup landsins. Biskup getur líka falið þeim að vígja presta, og þá mundu prestvígslur oft og tíðum fara fram í dómkirkjunni á Hólum, og þessari merkilegu kirkju þar með veitast sá vegur og virðing, sem hún á fullkomlega skilið, því að hún er ein af okkar helgustu þjóðmenjum, sem skylt er að vernda á allar lundir. Eg skal ekkert segja um það, hvort rétt er að fækka kirkjum yfirleitt, en þó svo væri, þá vildi eg sízt að það kæmi niður á þessari kirkju.
Um launaatriðið hefi eg engu við að bæta það, sem hæstv. ráðherra sagði.
En hvað snertir ágreiningsatriði þeirra háttv. nefndarmanna, sem skrifuðu undir nefndarálitið með fyrirvara, þá lít eg alt öðru vísi á það en þeir gera. Það er víst, að sú venja hefir við gengist um langan aldur, að biskup framkvæmi biskupsvígslu. Og eg held að það sé ekki rétt að bregða út af þeirri venju þannig, að prestar verði látnir vígja biskup. Enda mun það varla fært eða lögum samkvæmt, eins og hæstv. ráðherra benti á.
Orðalagið á 2. gr.: ». . . eftir tillögum prestastéttarinnar« má að vísu deila um, en líklega verður ákvæðið ekki skilið öðru vísi en svo, að prestar í biskupsdæminu hreint og beint kjósi biskupsefni.
Eg get ekki fallist á að það sé neitt óviðkunnanlegt, að vígslubiskupar fái borgun fyrir biskupsverk eftir reikningi. En í því liggur sparnaður fyrir landsjóð. Ef borgunin væri fastákveðin, og þá auðvitað nokkuð rífleg, gæti oft svo viljað til, að vígslubiskup tæki peningana á þurru landi, ef hann byggi í námunda við dómkirkjuna. Því er bezt að hafa borgunina ekki fastákveðna. Enda er slíkt ekki einsdæmi, þó um veglegt starf sé að ræða, t. d. fá alþingismenn borgun eftir reikningi og skammast sín ekkert fyrir, og þó er starf þeirra að vissu leyti engu óveglegra en starf vígslubiskupa.
Að endingu skal eg að eins taka það fram, að eg felst á tillögu hæstv. ráðherra um að breyta orðinu »aðalbiskup« í »biskup landsins«, og mun styðja að því, að nefndin komi með breyt.till. í þá átt við 3. umræðu.