29.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í B-deild Alþingistíðinda. (402)
27. mál, kosningarréttur og kjörgengi
Sigurður Stefánsson:
Eg get að vissu leyti fallist á það, sem háttv. 4. kgk. þm. sagði, að það væri eðlilegra að leysa vistarbandið, og eg skal taka það fram, að á þingi 1907 var eg því meðmæltur. En þau lög hafa mælst miður vel fyrir hjá bændum; þeim þykir að mörgu leyti varhugavert, að afnema vistarbandið alveg, þar sem það myndi leiða til enn meiri vinnufólksskorts en nú er, og er þó ekki á það bætandi.
Hins vegar er ekkert á móti því, að sömu ákvæði séu sett inn í lögin um hjú, sem um konur, að þau geti skorast undan kosningu. Samt hygg eg, að það mundi sjaldan koma til óþæginda, þó það ákvæði væri ekki. Fyrst um sinn yrði það varla títt, að hjú yrðu kosin. Auk þess er vegurinn til lausamenskunnar orðinn svo auðveldur nú, að það ætti engum vel vinnandi manni að vera ókleift, að leysa sig undan vistarbandinu, ef hann þættist betur geta neytt réttinda sinna með því móti.
Kosningarréttinn hafa hjú skilyrðislausan. Sárfáir húsbændur mundu neita hjúi sínu um að neyta kosningarréttar síns. Að vísu má ef til vill segja, að þeir hafi réttinn til þess, en nú er sú breyting orðin á hag hjúanna, að þau eru ekki lengur skoðuð ófrjálsir menn, sem húsbændur hafi alt vald yfir. Breytingin hefir gengið í þá átt, að auka frelsi þeirra, og húsbændur gera nú að vilja hjúa sem auðið er.