29.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (406)

27. mál, kosningarréttur og kjörgengi

Sigurður Hjörleifsson:

Eg tók þetta fram af því, að hv. 4. kgk. þm. var búinn að segja, að þessi tvö ákvæði færi í bága hvað við annað. Geri þau það ekki, er uppástunga mín óþörf. Eg læt lögfræðingana um að deila um það. En eg talaði aðeins út frá skilningi háttv. 4. kgk. á þessu atriði.