04.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Sigurður Hjörleifsson:

Mér þykir ekki ástæða til að fara að gera grein fyrir atkvæði mínu að því er snertir einstaka liði, enda er eg í flestum atriðum sammála meiri hluta nefndarinnar. En mig langaði til að víkja lítið eitt að umræðum þeim, sem orðið hafa hér í deildinni um athugasemdina við styrkinn til gufuskipaferða. Saga þessa máls á síðasta þingi sýnir, að það er til lítils að vera að setja stjórninni strangar reglur. Þá urðu skilyrðin til þess, að samningar tókust ekki. Eg segi þetta ekki til þess að álasa þinginu, heldur til að sýna hvað af því gæti leitt, ef þingið setur stjórninni nákvæmar reglur í þessu efni. Mér finnast ástæður þær, sem færðar hafa verið fram fyrir því, að strika beri burt athugasemdina, veigalitlar. Það er auðvitað, að þeir sem ekki treysta stjórninni til þess að semja um þetta mál, vilja helzt fella athugasemdina burt, en hinir, sem traust bera til stjórnarinnar í þessu efni, hljóta að vilja láta hana standa. Um Hamborgarferðimar álít eg að réttast sé að ekki sé nánar ákveðið, en gert er í athugasemdinni, því að búast má við að ekki verði þörf á mörgum ferðum á ári í fyrstu, en margt getur breyzt á 10 árum, og fyrir því gott að ekkert sé ákveðið fyrir fram, er kynni að fara í bága við þarfir síðari tíma.

Þá þykir mér það undarlegt, ef 700 kr. er ekki sæmileg borgun fyrir vitaeftirlitið, þegar þess er gætt, að hún er ætluð einum af starfsmönnum landsjóðs, sem fyrir bragðið fær 700 kr. launaviðbót. það er auðvitað, að ef maðurinn er svo störfum hlaðinn nú, að hann getur ekki bætt á sig vitaeftirlitinu, þá verður hann að sleppa einhverju af þeim störfum, sem stjórnin þá verður að fá aðra til að gera.

Skýringarnar, sem komið hefir verið með hér í dag viðvíkjandi símunum, gefa mér tilefni til athugasemda; eg vil segja að það sé sorglegt, ef þær skýringar eru réttar. Vér verðum þá neyddir til að leggja fé í aðallínuna í hvert skifti og einhverjum nýjum símaspotta er bætt við, úr því það þarf nýjan þráð milli Akureyrar og Valla sakir Siglufjarðarsímans, og milli Reykjavíkur og Norðtungu vegna símans til Borgarness og Akraness. Eg vil segja að þingið hafi hálfvegis verið gint, að láta það ekki vita þetta fyrirfram, og í annan stað sýnir það bezt, að símamálið er ekki svo undirbúið, sem skyldi.