20.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 649 í B-deild Alþingistíðinda. (434)
30. mál, girðingar
Framsögumaður (Jósef Björnsson):
Eins og sést á nefndarálitinu, ræður nefndin deildinni til að samþykkja frumvarpið, en þó leggur hún raunar til, að á því séu gjörðar nokkrar breytingar, sem þó eru mestpart orðabreytingar, sem ekki raska efni frumvarpsins; en aðeins á tveim stöðum má þó segja, að þær snerti efni málsins, nfl. breytingar þær, sem lagt er til að gjörðar séu við 8. gr., í fyrsta lagi, að á eftir orðunum »öllum girðingum« bætist inn í orðin »yfir vegi«, og í öðru lagi, að á undan orðinu »vísvitandi« bætist inn í »Brot móti þessu og«, og aftan við 8. gr. bætist: »og skaðabótum«. Ef orðalagið í 8. gr. er látið halda sér, mætti líta svo á, að lögð væri á sú almenna skylda, að á öllum girðingum, jafnvel þótt prívatmenn eigi, yrðu að vera hin lögboðnu nauðsynlegu hlið. En eg lít svo á, að Nd. hafi meint að svo skyldi aðeins vera, þar sem um vegi er að ræða, þar sem veruleg umferð er um, en alls ekki allar girðingar undantekningarlaust. Vitanlega þurfa hlið að vera á girðingum, sem liggja yfir alfaravegi, en þó er það þar við að athuga, að eftir núgildandi lögum er ekki leyfilegt að leggja girðingar yfir alfaravegi, nema til þess fáist sérstakt leyfi. Þessi tillaga nefndarinnar miðar því til þess, að koma þessum ákvæðum í fult samræmi við 44. gr. vegalaganna, og kveða á um, hvernig að skuli farið, þegar leyfi er veitt til að girða yfir alfaravegi.
Hin br.tillagan, sem kveður skýrar á um efni greinarinnar, lýtur að því, að bætt sé inn í orðum, sem gerir það ákveðnara, sem um er að ræða, nefnilega að síðasti partur greinarinnar orðist svo: »Brot móti þessu og vísvitandi skemdir á girðingum og hliðum varða sektum og skaðabótum«.
Þetta er í fullu samræmi við lögin um girðingar frá 1903, því í 12. gr. þeirra er gjört ráð fyrir skaðabótum fyrir vísvitandi skemdir á girðingum. En br.tillögurnar eru hér teknar upp bæði af því, að þær eru í samræmi við gildandi lög, og eins til þess að það komi skýrt fram, sem Nd. hefir meint með þessum ákvæðum.
Að öðru leyti er um orðabreytingar að ræða, svo óþarft er að fara fleiri orðum um þetta mál, og skal eg ljúka máli mínu með tilmælum um það, að hin háttv. deild aðhyllist br.tillögur nefndarinnar, og vona eg að frumv. nái fram að ganga með þeim breytingum.