20.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (436)

30. mál, girðingar

Framsögumaður (Jósef Björnsson); Eg skal taka það fram út af orðum háttv. 2. kgk. þm., að nefndin er á sama máli og hann um, að frumv. megi skifta í 3 kafla eftir efni. 1.—6. gr. frv. eiga við þau tilfelli, þegar girðingar eru styrktar af almanna fé. En eg veit ekki, hvernig nefndin lítur á það, að ákvæðin í 1. gr. sé látin taka til allra girðinga. Sömuleiðis áleit nefndin, að 7. og 8. gr. frumv. væru almenns eðlis, eins og eg benti á áður með skírskotun til eldri laga.

Að því er snertir samþyktarákvæðin, þá má vera, eins og háttv. 2. kgk. tók fram, að þau sé nokkuð hörð, og vill nefndin gjarnan taka þetta til athugunar til 3. umræðu, og vita hvort ástæða muni vera til að koma með breytingartillögu í þá átt, sem háttv. þm. benti til.