22.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (459)
34. mál, dómþinghá Keflavíkur
Jens Pálsson:
Eg flyt þetta frv. eftir ósk sveitarstjórnarinnar í Keflavíkurhreppi. Eg skal geta þess, að þessi hreppur er nýr. Keflavík, sem sérstakt kauptún, notaði rétt sinn samkvæmt sveitarstjórnarlögunum til að verða sérstakur hreppur. Kauptúnið hefir stækkað mjög á síðustu 20 árum. Áður var öll bygð kauptúnsins á jörðinni Keflavík, er tilheyrði Rosmhvalaneshreppi. En síðan hefir kauptúnið bygst að nokkru leyti inn á land Njarðvíkurhrepps. Fyrir því hefir Njarðvíkurhreppur og Keflavík sameinast í eitt hreppsfélag, er nefnist Keflavíkurhreppur. Hreppsbúar eru um 600.
Það yrði til hægðarauka fyrir alla, er hlut eiga að máli, að hreppurinn væri sérstök dómþinghá. Þingstaðurinn, sem Keflavík nú á þingsókn að, er í nálægt tveggja mílna fjarlægð frá kauptúninu. Við breyting þá, er frv. fer fram á, sparast kauptúnsbúum því þingsókn um þennan spöl vegar. Sýslumanninum, sem situr í Hafnarfirði, væri breytingin einnig til hagræðis, því hinn nýi þingstaður er nálægt 2 mílum nær bústað hans. Það er því alt sem mælir með því, að hinn forni þingstaður verði afnuminn fyrir þennan hrepp, og þingstaður fyrir hann settur í kauptúninu Keflavík.
Eg orðlengi þetta ekki meira, en óska að málið fái að ganga áfram sína lögboðnu leið.