22.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í B-deild Alþingistíðinda. (463)
35. mál, verslunarlóð Ísafjarðarkaupstaðar
Sigurður Stefánsson:
Eg flyt þetta frumv. eftir ósk kjósenda minna og áskorun bæjarstjórnarinnar á Ísafirði. Ástæðan er sú, að verzlunarlóðin á Ísafirði er lítil; hún er bara tanginn. Menn hafa farið fram á, að Heiði og Stekkjanes væri dregið undir verzlunarlóðina og að þar mætti reisa verzlunarhús.
Nú er svo hagað, að það er ekki hægt að reka verzlun hvorki fyrir utan eða innan tangann.
Trésmíðafélag nokkurt var fyrir einu ári síðan sett á stofn; það reisti hús fyrir innan Tangann, en mátti ekki verzla þar með timbur.
Málið er einfalt og þarf ekki frekari skýringar við, og eg vona að deildin lofi því að ganga hindrunarlaust fram.