03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (476)
36. mál, sala á Kjarna
Ari Jónsson:
Eg er ekki samþykkur skýringu þeirri, sem hæstv. ráðherra gaf á lögunum. Það er að vísu rétt, sem bæði hann og háttv. 5. kgk. þm. tóku fram, að eftir lögunum um forkaupsrétt leiguliða hefir hreppurinn forkaupsréttinn næstur á eftir leiguliða. En eg tel það mikið vafamál, hvort lögin um forkaupsrétt leiguliða geti átt hér við. Eg held að hér verði að taka tillit til annara laga, sem snerta þetta sama efni, nefnilega laganna um sölu þjóðjarða. Þar er heimildin til að selja ábúanda þjóðjörð bundin því skilyrði, að jörðin sé ekki, að áliti sýslunefndar, hentug til almenningsnota. Það verður því að taka tillit til þess, hvort jörðin kemur betur að almenningsnotum, ef hún er seld Akureyrarkaupstað. Það er ekki að marka, þó að meðmæli sýslunefndar í Eyjafjarðarsýslu séu ekki komin enn þá, því að eftir því, sem eg hefi heyrt, er sýslufundur þar ekki um garð genginn enn. — En ef sýslunefndin nú mælir með því, að jörðin verði seld Akureyrarkaupstað, þá ætti alls ekkert að vera í veginum fyrir því að leyfa söluna.
Eg álít annars, að hér beri að taka tillit til undantekningarinnar í 2. gr. laganna um sölu þjóðjarða, og fara eftir því, hvort salan er æskileg vegna almenningsnota eða ekki. Og það virðist mér vera aðalatriðið í þessu máli, hvort jörðin verður í raun og veru til meiri almennings afnota, ef Akureyri fær hana keypta.