03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (481)
36. mál, sala á Kjarna
Sigurður Hjörleifsson:
Það hefir verið talað um að þetta væri »spekulation« af Akureyrarbúum. En mér sýnist orðið ekki eiga vel við. Verðið er matsverð, og það er eðlilegt, að farið sé fram á að fá jörðina fyrir það verð, sem dómkvaddir menn hafa virt hana. Ef þinginu þykir verðið of lítið, getur það auðvitað sett hærra verð á jörðina, og þá er það Akureyrarbúa að ganga að eða frá. Þá dettur niður öll ásökun um það, að bærinn sé að reyna að fá jörðina fyrir gjafverð. — Hér er ekki um neina »spekúlation« að ræða. Það er »spekúlation«, þegar einstakir menn kaupa jarðir, helst nálægt bæjum, til þess að láta þær stíga í verði og selja þær svo. Slíkt getur verið óheppilegt, eins og hefir sýnt sig á Akureyri um landið norðan við bæinn. Það land er fast, einmitt vegna þess konar «spekúlationa«. En inn á við er enn þá mögulegt að auka landið, og það getur bætt úr. — Um »spekúlations«-hættu getur verið að tala, þar sem einstakir menn eiga í hlut, en ekki heil bæjarfélög.