31.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (488)
36. mál, sala á Kjarna
Framsögumaður (Sig. Hjörleifsson):
Þegar þetta mál var til umræðu hér í deildinni fyrir nokkru síðan, urðu talsverðar umræður um það, og verður því væntanlega ekki eins mikið talað um það nú.
Eg skal reyndar geta þess, að við þá umræðu komu fram nokkrar skýringar í þá átt, að löggjafarvaldið hefði ekki ótakmarkaðan umráðarétt á jörðinni. Eg vona að háttv. deild viðurkenni, að hér hafi átt sér stað nokkur misskilningur, þar sem öll nefndin hefir orðið sammála um, að umráð á jörðinni væri ekki takmörkuð samkvæmt lögunum frá 20. okt. 1905, um forkaupsrétt leiguliða. Þetta sést á nefndarálitinu á þingskjali 311.
Annars skal eg minnast dálítið frekar á jörðina og gefa nokkrar upplýsingar um hana. Jörðin er eftir nýju mati 41,2 hndr. að dýrleika, og afgjald eftir hana 600 álnir. Eg skal geta þess strax, að það er víða ekki mikið að byggja á mati, og í Eyjafirði er hátt mat á jörðum. Þessari jörð fylgir 12 dagslátta tún, sem gefur af sér 120 hesta í meðalári. Á engjum má heyja þar um 600 hesta. Landrými er lítið og vart um önnur hlunnindi að ræða. Eg skal leyfa mér að bera þessa jörð saman við aðra jörð, sem eg þekki. Það er Hvammur í Vatnsdal. Sú jörð gefur af sér í meðalári um 450 hesta af töðu og um 2000 hesta af útheyi, en er þó ekki metin nema á 42.8 hndr., og fyrir nokkrum árum var þessi jörð seld á 7000 kr. Það er máske dálítið eftirtektarvert um Kjarna, sem er landsjóðsjörð, að hún skuli ekki gefa af sér meira en þetta, þegar litið er til dýrleikans, og gæti það verið íhugunarefni þeim, sem hugsa að sú sé ein leiðin til viðreisnar landbúnaðinum, að allar jarðir séu eign landsjóðs.
Viðvíkjandi verðinu skal þess getið, að jörðin var metin árið 1905 á 7500 kr., en þá mælti sýslunefnd Eyfirðinga á móti því, að jörðin væn seld vegna skóla, sem fyrir hugað var að hafa á henni. En jörðin er metin nokkru hærra nú. Að öðru leyti eru öll aðalatriði tekin fram í nefndarálitinu. Eins og það ber með sér, hefir nefndin ekki getað orðið sammála og þess vegna klofnað. Meiri hlutinn lítur svo á, að löggjafarvaldið hafi algerlega fríar hendur til þess að selja jörðina. Og skal eg ekki fara frekar út í það, nema andmæli komi á móti. Auk þess skal eg benda á þá þörf, sem Akureyri er á að eignast jörðina og skal jafnframt láta í ljós, að mér þykja ástæður háttv. minni hluta í gagnstæða átt mjög veigalitlar. Í upphafi álits minni hlutans er þess getið, að beiðni Akureyrar um kaup á jörðinni sé bygð á afsali ábúandans. Þetta er ekki rétt. Beiðni Akureyrarbúa er sprottin af nauðsyn á að ná í jörðina, og núverandi ábúandi sættir sig við að bærinn eignist hana. Og Akureyri fer svo vel að þessu máli, að bærinn býðst til að borga ábúandanum 200 kr. á ári fyrir kauprétt og ábúðarrétt. Eg sé heldur ekki vel, hvers vegna þörf bæjarins að eignast jörðina sé ekki næg ástæða, því að eg veit ekki betur, en að landið sé einmitt til í þarfir íbúa landsins. Það má enn fremur ráða af áliti minni hlutans, að nokkrir slægjuhólmar hafi bæzt við landeign kaupstaðarins, síðan hann keypti Naust. Þetta liggur í orðinu »nú«, en það má vera, að þetta sé misritun, en sé það ekki, þá er þetta rangt. Að jörðin sé líkleg til seturs fyrir bændaskóla, get eg heldur ekki kannast við, þar sem löggjafarvaldið hefir skipað því máli á annan hátt, og nú er ekki fyrirsjáanlegt, að menn mundu nokkru sinni vilja taka hana undir bændaskóla.
Eg get heldur ekki skilið það, sem stendur í nefndarálitinu um tilkall Hrafnagilshrepps til Kjarna, — enda er því neitað öðru hvoru, að hreppurinn hafi nokkurt tilkall, og í því er eg háttv. minni hluta fullkomlega samdóma.
Eg skal svo ekki fjölyrða mikið um þetta frekar, en vil aðeins leggja til, að jörðin verði seld fyrir það verð, sem farið er fram á. Eg er viss um það, að nú sem stendur er jörðin full hátt seld, en annað mál er það, að hún getur orðið meira virði síðar, en þá þarf mannshöndin að koma til. Hinsvegar er ekki sagt, að Akureyrarbær mundi ganga frá tilboði sínu um að kaupa jörðina, þó að hún yrði sett nokkuð upp, því að kaupstaðurinn þarf á jörðinni að halda, eins og eg hefi oftsinnis tekið fram. En það má telja vafasamt, hvort það sé rétt að skrúfa verðið upp í þeirri von, og eins hitt, hvort það mundi verða nokkur ágóði fyrir landið í heild sinni, að selja jörðina dýrara en hún er verð.