31.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (489)
36. mál, sala á Kjarna
Júlíus Havsteen:
Meining mín er, að alls ekki beri að selja þessa jörð, hvorki Akureyrarkaupstað né Hrafnagilshreppi. En ef á að selja hana, þá stendur Hrafnagilshreppur nær. — í þessu sambandi legg eg enga áherzlu á lögin um forkaupsrétt leiguliða, sem sé á það, að salan komi í bága við þau, því að eg hefi aldrei verið í efa um, að stjórnin mætti selja jörðina eftir sérstökum lögum.
En eg sleppi þessu og sný mér að hinu, á hve miklum rökum eru bygðar kröfur Akureyrarkaupstaðar um að fá jörðina keypta. Flutningsmaður hefir tilfært nokkrar ástæður, og fyrst þá ástæðuna, að Akureyri þurfi jarðarinnar við til kúabeitar. En eg mótmæli því fastlega, að Kjarni verði seldur Akureyri til slíkrar notkunar. Kaupstaðurinn hefir mikið land sem stendur, og getur fengið nóg land í viðbót til beitar fyrir skepnur sínar, án þess að taka eina beztu jörðina í nágrenninu til þeirra nota. Slíkt er óviðeigandi notkun svo ágætrar jarðar, sem Kjarni er.
Önnur ástæðan er sú, að þessi miður heppilegu lög, nr. 60, 27/11 1907, líða öllum að flytja í bæi og setjast þar að, án aðsetursleyfis. Og nú vilja Akureyringar losna við þessa menn, sem flutt hafa inn í bæinn, aptur á þann hátt, að koma þeim að Kjarna. Þar eiga þessir menn að sitja, og milli þeirra á sennilega að skifta jörðinni í mörg grasbýli; enda sagði flutningsmaður eitthvað í þessa átt við 1. umr. málsins. — Væri það nú gott fyrir Hrafnagilshrepp, að fá þangað hóp af slíkum mönnum? Eftir 10 ár væru mennirnir búnir að vinna sér þar sveitfesti, og hreppurinn sæti með alla kássuna. Þetta gæti vel orðið til algerðrar eyðileggingar fyrir hreppinn, og að þessu athuguðu get eg alls ekki verið með slíkri sölu.
Er það nú gagnlegt fyrir þjóðina, að fólkið streymir sem mest til kaupstaðanna? Eg held síður en svo; eg held að það væri farsælla landi og lýð, að stuðla fremur að því, að fólkið væri kyrt í sveitunum og stundaði landbúnaðinn sem fyrrum. En hér á að gera þvert á móti; því það á að gera það meira aðlaðandi fyrir fólkið en áður var, að flytja úr sveitunum til þessa bæjar, Akureyrar.
Akureyringar hafa fengið ábúandann á Kjarna, sem er ekkja, til þess að afsala sér ábúðarréttinum og forkaupsrétti í hendur kaupstaðarbúum. Þetta hefir verið gert rétt fyrir nefinu á umboðsmanninum, og kemur í bága við almenn lög og venjur. En flutningsm. leggur ekki áherzlu á þetta atriði málinu til stuðnings, og því sleppi eg að tala um það frekar.
Háttv. flutningsm. sagði, að eg væri meiri hluta nefndarinnar samdóma um það, að matið á jörðinni væri sanngjarnt. Jú, eg álít einmitt að matið sé hæfilegt, eins og jörðin er nú, samanborið við alment jarðaverð. En það eru allar líkur til að jarðir, sem liggja nálægt kaupstöðum, hækki til muna í verði; og þá ekki hvað sízt þessi jörð, sem auk þess áreiðanlega verður talin meðal þeirra, sem heyra undir 2. gr. laga 20. okt. 1905 um sölu þjóðjarða. Neðri deild hefir og nýlega neitað um sölu tveggja jarða nálægt Reykjavík, Hólms og Lambhaga, af því að hún vildi fara varlega í, að selja góðar jarðir nálægt stórum kaupstöðum. Og eg álít, að þessi háttv. deild ætti að fylgja sömu stefnu.