08.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (49)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Lárus H. Bjarnason:
Mér þykir undarlegt, að br.till., sem fóru á skrifstofuna, önnur kl. 9 en hin kl. 10, skuli enn eigi vera komnar, og það því fremur, sem háttv. forseti mun hafa beðið að hraða prentuninni. Þegar fjárlögin fóru úr Ed., voru á þeim ætlaðar 2500 kr. til þess að rita og gefa út ítarlegt rit um þjóðréttarstöðu landsins, en nú er farið fram á að hækka þennan bitling upp í 5000 kr. Hefi eg og nokkrir aðrir þm. komið fram með br.till. um að fella þenna lið alveg burtu úr fjárlögunum. Eins og liður þessi liggur fyrir, er hann algjörlega óaðgengilegur og óþarfur. Innan lands þarf eigi að sannfæra menn um að við höfum bæði »lagalegan« og sögulegan rétt, og utan lands myndi slíkt rit engin áhrif hafa, er það væri verðlaunað af jafn pólitískum embættismanni og ráðherranum. Enda er mér ekki kunnugt um, að nokkur maður, sízt úr meiri hl., sé fær um að semja slíkt rit, sízt sá maður, sem þessi bitlingur mun ætlaður. Höfundur slíks rits verður fyrst og fremst að vera lögfróður maður. Hann verður og að vera vandaður maður og sannorður, maður, sem kann að haga orðum sínum kurteislega, en ekki fer með slettur. Verk þetta þarf að vanda mjög, ef það á eigi beint að spilla fyrir oss. Annað er það, að eigi er minst á, hvað borga eigi fyrir örkina, né heldur hve stórt ritið eigi að vera. Það þarf eigi að ætla nokkurri stjórn og sízt ólögfróðri, að dæma um þetta rit. Hefi eg því til vara komið með þá breyt.till., ef liður þessi eigi verður alveg feldur burt, að sett sé 5 manna nefnd til þess að dæma rit þetta, og skipi hana hinn kgl. ísl. landsyfirréttur og hinir föstu kennarar lagaskólans. Breyt.till. þessar, 767 og 768, eru ókomnar enn, og hefi eg grun um, að eigi muni hafa verið flýtt fyrir þeim.