31.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (494)

36. mál, sala á Kjarna

Steingrímur Jónsson:

Eg er samdóma meiri hlutanum um tvent, að fyrst um sinn hefðist meira upp úr Kjarna, ef Akureyri fengi hann, en upp úr honum hefst, meðan hann er eign landsjóðs, og að hægt sé að selja jörðina með sérstöku lagaboði.

En lengra get eg heldur ekki fylgt meiri hlutanum, því að eg álít, að frv. þetta komi í bága við lögin um forkaupsrétt leiguliða. Þau lög eru þannig orðuð, að þau virðast slá því föstu sem almennri meginreglu, að leiguliði hafi ávalt forkaupsrétt, og hreppurinn að honum frágengnum. Frá þessari almennu reglu gera lögin enga undantekningu, en yfir þeim lögum stendur að sjálfsögðu 50. gr. stjórnarskrárinnar, sem mælir svo fyrir, að taka megi eignir einstakra manna lögnámi, ef almennings heill krefjist þess, og fult verð kemur fyrir.

Þegar lögin um forkaupsrétt leiguliða voru til meðferðar í þinginu, gátu þau að eins náð til jarðeigna einstakra manna, því að á þeim tíma mátti ekki selja þjóðjarðir, nema með lagaboði, og kirkjujarðir voru að eins stöku sinnum seldar með konungsúrskurði, — en það var skoðað sem undantekning. Það má deila um, hvort þetta frumv. fer fram á beina eða óbeina breytingu á lögunum um forkaupsrétt leiguliða, en hitt er víst, að meginregla laganna um forkaupsrétt ábúanda og hrepps er almenns eðlis, og það sést meðal annars af því, að sýslunefndum er gefið vald til þess að segja álit sitt um, hvort sýslu- eða sveitarfélög þurfi að nota jörðina, og ef svo er, þá má ekki selja jörðina. En frumvarp þetta kemur í bága við þessa löggjafar-meginreglu.

Sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu hefir lagt á móti sölunni, vegna þess að það er ríkjandi skoðun, að minsta kosti í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslu, að jörðin sé sérstaklega vel fallin til skólaseturs.

Verði sú stefna ofan á, að hafa bændaskólana að eins 2, þá er ekki ólíklegt eftir atkvæðagreiðslu þeirri, er þegar hefir fram farið í neðri deild í fjárlögunum, að Hólaskóli ekki geti fullnægt þörfum Norðlendinga, og gæti komið fyrir, að bændaskóli Norðlendinga yrði fluttur í Eyjafjörð, og þá hafa margir einmitt augastað á Kjarna. Verði bændaskólunum aftur á móti fjölgað, myndu Eyfirðingar og Þingeyingar vilja fá skóla í Eyjafirði.

Mér virðist því ekki fjarri lagi, að hafa jörðina til reiðu í þessu efni, og því er hún betur komin í höndum landsjóðs en Akureyrarbæjar.

Ennfremur er mikið talað um það, bæði norðanlands og hér á þingi, að koma á fót hússtjórnarskóla á Norðurlandi, og er svo til ætlast, að sá skóli sé nærri Akureyri, en þó ekki í bænum, og væri þá einmitt Kjarni ágætlega fallinn til skólaseturs.

Alt þetta mælir mjög mikið á móti því, að selja jörðina að svo stöddu.

Þá kem eg að því, sem nánast heyrir til að tala um við 2. umræðu, það er það verð, sem á að selja jörðina fyrir. Landsjóður hefir fylgt þeirri reglu, að selja við vægu og góðu verði, þá er um leiguliða er að ræða, en með því hefir hann gert einstökum mönnum töluvert tjón, því að vegna þess, að söluverðið á þjóðjörðum hefir verið svo lágt, þá hafa allar jarðir á landinu haldist niðri í óeðlilega lágu verði. Þetta gat verið afsakanlegt, þegar leiguliðar áttu hlut að máli, en nú þegar bæjarfélag á í hlut, á að sjálfsögðu að selja jörðina fyrir fult gangverð. Og mér þykir 8200 kr. ótrúlega lágt verð fyrir jörð eins og Kjarna. Mér er skýrt svo frá, að jörðin gefi af sér 800 hesta af nautgæfu heyi, að minsta kosti, og hafi auk þess allmikið landrými. Slíka jörð nær engri átt að selja fyrir 8200 kr.; það minsta, sem til mála gæti komið, væri 12000 kr., og væri þó gjafverð.

Háttv. þm. Akureyrar sagði, að landsjóður ætti ekki að setja menn á höfuðið með óhæfilega háu verði. Auðvitað ekki. En þótt verðið á Kjarna væri fært upp í 12000 kr., fengi Akureyri ágætt kaup, ef hún kynni vel með að fara. En fari bærinn óviturlega að ráði sínu, sem engin ástæða er til að ætla, þá verður hann sjálfur að bera skellinn, og á landsjóður enga sök á því. Akureyri hefir einmitt grætt á jarðakaupum sínum hingað til.

Eg skal að vísu játa, að bærinn getur haft mikið gagn af jörðinni, en hins vegar fæ eg ekki séð, að honum sé það bráðnauðsynlegt, að eignast hana. Eg býst líka við, að það sé ekki öllum bæjarbúum kappsmál, að fá jörðina, heldur að eins nokkrum hluta þeirra, og ef verðið væri fært upp, er vafasamt, hvort meiri hluti yrði fyrir því meðal bæjarbúa að kaupa jörðina.

Að endingu vil eg taka fram að nýju, að eg er sölunni algerlega mótfallinn.