02.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (506)

36. mál, sala á Kjarna

Framsögumaður (Sig. Hjörleifsson):

Í tilefni af lekanum vil eg benda á, að það má vel setja undir hann þó að málið væri ekki tekið út af dagskrá. Eg skil ekki annað en háttv. 5. kgk. þm. eigi svo góða menn að í hinni deildinni, að hann geti fengið þessa breyt.till. borna fram þar. — Annars mundi eg telja breytinguna til bóta, að leggja jörðina undir lögsagnarumdæmi Akureyrar. En eins og eg hefi tekið fram áður, hefi eg ekki farið fram á það, af því að eg tel það misgerð við Hrafnagilshrepp, að gera slíkt án hans leyfis.