23.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

36. mál, sala á Kjarna

Júlíus Havsteen:

Eg tók það einmitt fram, að eg hefði haft fyrir mér almennar reglur um virðingarverðið á jörðinni, en í þeim almennu reglum er þess ekki gætt, að jörðin liggur nálægt kaupstað. Og þar að auki verð eg að taka það fram, að það voru sér í lagi þær ástæður hér fyrir hendi af minni hálfu, að eigi mætti ganga á rétt sveitarfélagsins til hagsmuna fyrir kaupstaðinn, sem alls eigi hefir neina þörf á því, að fá þennan mikla landauka, sem spursmál er um.