08.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (55)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Pétur Jónsson:
Eg er hér með breyttill. um að hækka styrkinn til ungfrú Jónínu Sigurðardóttur úr 500 kr. upp í 1000 kr. til húsmæðrakenslu. Eg vil benda á það, að það var einmitt háttv. efri deild, sem kom fram með það, að hækka að mun fjárv. til kvennaskólanna. Það verður mér því óskiljanlegra, hvernig hún fer að vera á móti þessari kvennafræðslu; í því er ekki mikil samkvæmni. Landbúnaðarnefndin hefir all-rækilega kynt sér þetta mál, og er því eindregið meðmælt.
Það er fengin góð reynsla fyrir því, að ungfrú Jónína Sigurðardóttir hefir lagt sérstaka alúð við þessa kenslu, og lagt hart á sig, til þess að standast kostnaðinn af skólahaldinu. Hún er því styrks þessa vel makleg.
Og þótt hún nú fái þessar 1000 kr. kemst sá styrkur þó ekki í neinn samjöfnuð við styrk til kvennaskólanna hér á landi. Eg vænti þess að háttv. sameinað þing sjái því, að breyt.till. mín er bæði sanngjörn og sjálfsögð.