23.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (571)

43. mál, aðgreining holdsveikra

Framsögumaður (Sig. Hjörleifsson):

Það er rétt af háttv. 3. kgk. þm. að athuga þetta atriði, og rétt af deildinni að gefa því nákvæman gaum. Væri svo, að það flýtti fyrir dauða sjúklinganna, að flytja þá á spítalann, því myndi eg aldrei ljá nafn mitt til fylgis slíku máli. Það væri þá hreint banatilræði við menn, að flytja þá þangað. En háttv. 3. kgk. þm. getur verið alveg óhræddur um að svo er ekki. Lítum á hið núverandi ástand. Holdsveika fólkið er fátækasta fólkið í landinu, og verður að fara á mis við alla »Hygiejne«, öll þægindi og allar lífsnauðsynjar. Það skortir læknishjálp, en getur oft þurft á bráðri læknishjálp að halda, t. d. til þess að gera barkaskurði og verja þá köfnun. Á spítalanum kafna sjúklingarnir ekki, þar er þeim hjálpað og lífið lengt. Það fer miklu betur um sjúklingana þar, en út um land. Þessir menn eru tað vísu sviftir frjálsræðinu, en það er gert fyrir þjóðfélagið í heild sinni, til þess að firra það því böli, er af holdsveikinni leiðir, og það eitt ætti að gera það að verkum, að menn greiddu atkv. með frumv.