14.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
46. mál, verslunarbækur
Júlíus Havsteen:
Það var aðeins af gáleysi, að 2 ár sem refsingarhámark féll burt úr 7. gr., og kom af því að við höfðum ekki hegningarlögin við hendina. Eg sé ekki að það væri neinn galli, að vísað væri til 264. gr. Gjaldþrot eru þar aðeins nefnd sem dæmi, en eru ekki skilyrði fyrir því, að greininni verði beitt. Eg hafði hugsað mér 7. gr. alt öðru vísi, og að í henni væri aðeins vísað til hinna almennu hegningarlaga. Hvað löggildingarnar snertir, þá get eg ekki álitið það hátt gjald, að borga 2 kr. af hverri bók. Það er ekki mikil verzlun, sem ekki þolir þau útgjöld. Það er ekki hægt að breyta aukatekjulögunum með þessum lögum, enda óheppilegt að fara að breyta í lagaboði um alt annað einum lið úr »systematiskri« lagaheild. Eg veit heldur ekki til að aukatekjulögunum hafi nokkru sinni verið breytt.