06.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (598)
46. mál, verslunarbækur
Pétur Jónsson:
Eg ræð heldur til að samþykkja frumv. eins og það kom frá Ed. Eg hefi minst á það áður (við nefndarmenn), að mér þætti heppilegra að hafa í búð kopíubók en löggilta höfuðbók. Mín reynsla er sú, að oft hafa orðið villur í höfuðbókunum, og getur þá hallast á þann, er kvartar, þegar kaupm. t. d. hefir hag af villunni og full sönnun er þá ófáanleg oft og tíðum. En full sönnun fæst aftur með því að »kopíera«.
Nú eru líka komnar svo hentugar kopíubækur, að það má nota blek og penna við þær.