06.05.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (600)
46. mál, verslunarbækur
Björn Kristjánsson:
Eg skal að eins benda hinum háttv. 3. kgk. þm. á það, að samritin þurfa alls ekki að fyrirbyggja deilur eða málaferli. Það er undir mönnum sjálfum komið, hvort þeir viðurkenna að hafa fengið þessi samrit, og veita þau því alls ekki neitt sönnunargagn.