02.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (611)
47. mál, löggilding verslunarstaða
Steingrímur Jónsson:
Eg skil ekki rökfærslu hins háttv. þm. Strandamanns. Ef Nd. vill fella Viðey, þá er hægt að gera það með breytingartillögu, og frv. getur því alls engin hætta stafað af því, þótt hún verði samþykt. Sjálfur hika eg ekki við að greiða atkv. með löggildingu Viðeyjar, og er þakklátur háttv. 3. kgk. þm. fyrir að hafa gefið mér tækifæri til þess.