26.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í B-deild Alþingistíðinda. (619)
47. mál, löggilding verslunarstaða
Steingrímur Jónsson:
Eg vil aðeins lýsa því yfir, að eg mun greiða atkvæði með viðaukatillögunni, af því eg álít það réttmætt að löggilda Viðey. Og á hinn bóginn álít eg að frumv. sé enginn háski búinn þó það fari í sameinað þing, því eg hygg að meiri hluti þingmanna sé með löggildingu Viðeyjar; að minsta kosti er engin hætta á því að það yrði frumvarpinu að öðru leyti til falls.