13.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í B-deild Alþingistíðinda. (62)

2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Framsögumaður (Sig. Stefánsson):

Eg skal játa, að eg er slæmur í reikningi, enda verð eg að játa, að mér er það hreinasta gáta, að eftir séu á þriðja hundrað þúsund af þessu ½ miljón kr. láni. Eg sé ekki betur en lánið hafi verið brúkað bæði til símalagninga og til að jafna þann tekjuhalla sem kominn var. Það getur enginn bent á þessa fúlgu, að hún sé til nema á pappírnum. Eg er viss um, að þó eg færi í bankann til að spyrja, hvort þessar 240 eða 260 þús. kr. væru geymdar þar, þá mundi eg engar upplýsingar geta fengið um þær; þeir mundu ekki segjast geyma þær þar. Þetta er hugsuð upphæð, sem hvergi er til í raun og veru, og hugsaðar upphæðir koma að litlu gagni, það er ekki hægt að borga mikið með þeim.

Meiri hlutinn og minni hlutinn eru á einu máli um það, að okkur beri að spara. En þá greinir á um, hvar eigi að spara, hvaða sparnaður sé til skaða. Að því er Rangárbrúna snertir, hefir meiri hlutinn sýnt fram á, að þó að frestað sé að byggja hana, heftir það alls ekki neinar menningarframfarir; því hvorki stafar lífi manna nein hætta af ánni eins og hún er nú, né heldur er hún svo verulegur farartálmi, að hún hefti tilfinnanlega nauðsynlega flutninga.

Háttv. 4. kgk. þm. sagði, að við hefðum átt það skilið, að fjárhagurinn við lok ársins 1907 varð betri en búist var við, og kvaðst jafnframt vera sannfærður um, að svo mundi einnig fara nú og á næstu árum. Það má vera að svo verði, en alt fyrir það væri heimskulegt að treysta á það. Engin gætin fjármálastjórn má reiða sig á það, að tekjurnar verði svo og svo miklu meiri vonum. Það væri eins og þegar bændurnir eru að setja á á haustin og setja á guð og gaddinn, — þeir gjöra það af því að þeir búast við miklu betri vetri en þeir í raun og sem hafa nokkra ástæðu til, í þeirri von, að guð hlaupi undir bagga með þeim, og horfella svo skepnurnar hrönnum saman. Eins getum við auðveldlega horfelt fjárhag okkar með því að byggja á eintómum vonum um meiri tekjur, en vér sjáum oss fært að áætla með nokkurri skynsemi.

Háttv. þm. vitnaði í enska parlamentið til stuðnings því, að við yrðum að efna þetta loforð síðasta þings um Rangárbrúna. Eg sé ekki að sá samanburður geti átt við hér; það er ólíku saman að jafna, að bera Englendinga saman við okkur í efnalegu tilliti. Hann áleit að þingið færi inn á vonda braut ef það tæki upp þann vana, að ganga frá loforðum fyrri þinga. Eg álít það þvert á móti hættulega braut, ef þingið áliti því slegið föstu, að það sé skuldbindandi fyrir eftirkomandi þing, ef eitthvert þing gefur ádrátt um eitthvert mál. Eg get ekki séð, að þetta þing hafi að neinu leyti bundnar hendur í þessu máli, sízt þar sem kosningar eru nýafstaðnar. Það er auðvitað leiðinlegt, að bregðast beinum loforðum, en sjálfsagt er að fresta framkvæmd þeirra, þegar nauðsyn ber til; nauðsyn brýtur lög.