30.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 787 í B-deild Alþingistíðinda. (637)

50. mál, kirknafé

Jens Pálsson:

Eg hlýt að halda fast Við þá skoðun mína, að hér sé um hættulegt fordæmi að ræða, sem komið geti til greina í miklu fleiri tilfellum en þeim tveimur, sem hv. 6. kgk. þm. talaði um. Það liggur ljóst fyrir, að hvar sem söfnuður tekur við kirkju, getur hann eftir þessu gert það að skilyrði, að hann megi gera hvað sem honum þóknast við kirkju-portsiónina. — En hver hefir annars samþykt þetta skilyrði sem söfnuðurinn setti? (Stefán Stefánsson: Landstjórnin). Málið átti að ganga til héraðsfundar og biskups, og hafi héraðsfundur og biskup eigi samþykt hið umrædda skilyrði, en söfnuðurinn samt tekið við kirkjunni, hefir hann frá skilyrðinu fallið, og er það þá að mínu áliti ekki bindandi. Hvað landshöfðingi hefir veitt ádrátt um fyrir fram er mér ókunnugt um; en til biskups hefir skilyrðið og málið aldrei komið í þessu formi, að minsta kosti hvað sparisjóðnum viðvíkur. — Annars hefi eg ekki séð það neinstaðar, að stjórnin hafi samþykt þetta; enda er það óhugsandi, því slíkt samþykki hefði verið henni heimildarlaust að lögum, og því þýðingarlaust.