04.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
51. mál, stofnun landsbanka
Framsögumaður (Jósef Björnsson):
Nefndin sem kosin var til að athuga þetta frumv. hefir haft mjög nauman tíma til þess, svo að álit hennar er ekki svo ítarlegt, sem hún hefði óskað. Vona eg að háttv. deild fyrirgefi það.
Nefndin hefir leyft sér að koma með nokkrar uppástungur til breytinga á frumv. Í fyrsta lagi skal þess getið, að nefndinni fanst eftir atvikum ekki ástæða til að gera allar þær breytingar á stjórn bankans, sem frumv. fer fram á. Á hinn bóginn játar nefndin, að sumar breytingamar séu ekki nema eðlilegar. Störf bankans hafa aukist mjög ár frá ári, og er því meiri nauðsyn nú en áður, að góðir starfskraftar séu við hann. Af þeirri ástæðu getur nefndin aðhylst að bæta við einum bankastjóra, svo að þeir verði framvegis tveir; þó voru nokkrir í nefndinni, sem ekki álitu brýna nauðsyn bera til að gera þessa breytingu. Að því snertir þá breytingu, frá núverandi fyrirkomulagi, að skipa ráðunaut í stað gæzlustjóra, er þess að gæta að hvorugur þeirra gæzlustjóra, sem nú eru við bankann, hefur útendað starfstíma sinn og nefndin leit svo á að þeir ættu rétt á að starfa tímann út og fá kaup allan þann tíma, er þeir eru kjörnir til. Ennfremur áleit nefndin, að sérstakur ráðunautur mundi í heild sinni ekki vera neitt hentugri en þeir gæzlustjórar sem hafa verið hann undanfarið og verða vafalaust áfram, ef ekki verður sú breyting gjörð á stjórn bankans að afnema þá. Og nefndin verður að telja þá svo góða menn, að ekki sé æskilegt að þeir láti af starfa sínum. Eg skal ekki fara fleiri orðum um breyt.till. við 1. gr., en skal þó geta þess að nefndin lítur svo á, að orðin »með sex mánaða uppsagnarfresti» hafi fallið út úr greininni af óaðgæzlu, þar sem þau standa í núgildandi lögum um ráðning bankastjóra. Hvort hentugt sé að hafa þetta ákvæði í lögunum, má ef til vill deila um; eg bendi að eins á þetta atriði til frekari athugunar, og er þeirrar skoðunar, að það vel mætti missa sín. Um breyt.till. við 3. og 4. gr. þarf eg ekki að tala; þær eru aðeins eðlileg afleiðing af þeirri breyttill. við 1 gr., að hafa gæzlustjóra í stað ráðunautsins.
Önnur efnisbreyting, er nefndin leggur til að gerð verði á frumv. er sú að fella burtu það ákvæði 5. greinar, að bankastjórar skuli fá hlutdeild í gróða bankans. Nefndin leit svo á að landsbankinn ætti að vera stofnun, er aðallega hefði hag og þarfir landsmanna fyrir augum, en ekki gróðastofnun. En verði stjórnendum bankans gefin hlutdeild í gróðanum, gæti það orðið til þess að þeir færu að leggja meiri áherzlu á það, að gera bankann að gróðastofnun, og litu minna á hag viðskiftavina hans. Nefndin leggur því til, að þessari gróðahlutdeild sé slept, en laun bankastjóranna aftur hækkuð úr 4000 kr. upp í 6000 kr., til að bæta þeim upp skaðann. Að minsta kosti álítur nefndin, að gróðahlutdeildin ætti að vera miklu minni, ef ætti að halda henni, því þá yrði minni freisting fyrir bankastjórana til að hafa aðallega gróða bankans fyrir augum. Þá hefir nefndin lagt til, að ekki sé gerð meiri breyting á launum bókara bankans, frá því sem nú er. Aðrar efnisbreytingar hefir nefndin ekki lagt til að gjörðar sé við frumvarpið, nema þá, er leiðir af breyt.till. við 1, gr., að laun ráðunauts falli burtu, og laun gæzlustjóra komi í staðinn.
Hinar breytingarnar eru að mestu leyti orðabreytingar, og ekki þannig vaxnar, að deildin geti ekki áttað sig fljótlega á þeim, og vil eg því ekki, sökum naumleika tímans, orðlengja meir um mál þetta.