04.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (648)
51. mál, stofnun landsbanka
Framsögumaður (Jósef Björnsson):
Eg get ekki látið vera að svara örfáum orðum þeim ákúrum, sem nefndin hefir orðið fyrir.
Hinn háttv. 5. kgk. þm. tók það fram, og eg verð að vera á sömu skoðun, að frumv. hafi ekki, eins og hinn háttv. þm. V.-Sk. sagði, stórversnað, enda voru ýms af þeim atriðum, sem hann fann að, ekki br.till. nefndarinnar. Það fyrsta af br.till. nefndarinnar, sem hann fann að, var, að betra væri að, hafa ráðunaut en gæzlustjóra. Eg skal ekki deila um það. En með því fyrirkomulagi, sem frv. gerir ráð fyrir, má búast við að þetta verði aukastarf hjá ráðunautnum, eins og hjá gæzlustjórunum, og ætti eftir því hag bankans að vera gætt jafnvel af tveim mönnum sem einum, þegar starfið er aukastarf, hvort eð er. Vitanlega kosta 2 gæzlustjórar meira en 1 ráðunautur, og hinn háttv. þm. V.-Sk. hefði þá getað fundið að því, að nefndin gat aðhylst 2 bankastjóra.
Um eftirlaun eða lífeyri núverandi bankastjóra skal eg taka það fram, að nefndin hefir ekki gert neina breytingu á því; það stendur óbreytt eins og háttv. Nd. skildist við það atriði, og er ekki að saka nefndina um það. En úr því að því atriði hefir verið hreyft, get eg getið þess, að nefndin í heild sinni er á þeirri skoðun, að þessi upphæð væri of há sem eftirlaun, og væri því ekki réttmæt hvað nafnið snertir. En jafnframt játar nefndin, að sá maður, sem nú er bankastjóri, ætti þetta fyllilega skilið, af því að hann væri nytsemdarmaður Annars var því hreyft, er nefndin var að láta málið frá sér fara, að rétt væri að þessari upphæð væri skift milli bankans og landsjóðs, og að hann fengi nokkum hlutann frá bankanum, en hitt, t. d. 1000 kr., sem sérstök heiðurslaun úr landsjóði fyrir nytsamlegt æfistarf, ef hann yfirgæfi bankann í lifanda lífi, en hvort það er kallað eftirlaun eða lífeyrir, gerir að vísu ekkert til, þótt eg fyrir mitt leyti fremur áðhyllist, að kallað væri það lífeyrir, því að annars mætti líta svo á, sem bankastjórar ættu hér eftir að fá eftirlaun, en því er eg mótfallinn, nema þá ef öll alþýða manna í landinu hefði eftirlaunarétt. Þessum manni getur þingið haft ástæðu til að veita styrk eða þóknun árlega, hvaða nafni sem kallast má.
Eg vildi gera þessa athugasemd, til þess að taka það fram, að hér er í raun og veru ekki verið að skapa neitt fordæmi fyrir eftirlaun.