06.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (658)
52. mál, bankavaxtabréf Landsbankans
Framsögum. (Jósef Björnss.):
Frumvarp það, sem hér liggur fyrir og nefndarálit, er hvorttveggja stutt. Frv. fer fram á, að landstjórninni veitist heimild til að kaupa bankaskuldabréf eða 3. flokks bankavaxtabréf fyrir alt að 2 milj. kr., og ennfremur að stjórnin taki lán fyrir landsjóð, 2 milj. kr., og það lán afborgist á 30 árum.
Eins og frumvarpið kom frá Nd. og eins og sölu bankavaxtabréfa er nú komið, lítur nefndin svo á, að ástæða sé til að breyta því nokkuð, en telur það þó rétt og gott í sjálfu sér og vill að það nái fram að ganga. Breytingu þá, sem nefndin hefir gert við 1. gr. hefir hún gert af því að henni fanst ekki koma nógu skýrt fram í frumv. hvaða bankaskuldabréf væri um að ræða, en það eru þau ein bréf, sem bankinn á óseld og einkum þriðja flokks bréf. Af öðrum en bankanum sjálfum hefir og víst enginn ætlast til að bréfin væri keypt. Þess vegna hefir nefndin bætt inn í orðunum: »af landsbankanum« til að taka af öll tvímæli. Eftir upplýsingum sem nefndin hefir fengið hjá öðrum gæzlustjóra bankans, sem sæti á í nefndinni, er lítið óselt af fyrri flokkum bankavaxtabréfanna um fram það, sem bankinn þarf að hafa fyrirliggjandi sem tryggingu, og að gefa landstjórninni leyfi til að kaupa þessi bréf er því engin brýn þörf, en eigi að síður á heimildin þó að ná til þeirra bréfa líka. Þá vill nefndin taka fram að sú er meiningin, að landsjóður þurfi ekki að kaupa af bankanum skuldabréf fyrir 2 milj. í einu, heldur kaupi smátt og smátt, eða hlaupi undir bagga með bankanum, og kaupi af honum eftir peningaþörfum hans. Af því það er meiningin að landsjóður hvorki tapi né vinni á þessum skiftum, þá finst nefndinni ástæða til að bæta inn eftir 2. gr. að kaupverðið fari eftir lánskjörunum. Því kjörin gætu verið þannig löguð að landsjóður t. d. yrði að taka lánið með nokkrum afslætti, og kæmi þá fram milligjöf, en það álítur nefndin ekki hent. 3. br.tillagan er afleiðing af hinum tillögunum, nfl. að orðin »bankaskuldabréf eða þriðja flokks« falli burt úr fyrirsögninni. Nefndin vill, eins og eg hefi áður bent á, að ákvæðin nái líka til fyrri flokka bankavaxtabréfanna ef bankinn ætti eitthvað eftir af þeim umfram það sem hann sjálfur þarf á að halda. Með því að þetta frv. er svo stutt og brt. við það svo ljósar og stuttar, skal eg ekki orðlengja meir um það og vona að háttv. þingd.menn átti sig á því.