06.05.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (659)

52. mál, bankavaxtabréf Landsbankans

Steingrímur Jónsson:

Eg er að mestu leyti samþykkur nefndinni um br.tillögur hennar, en þó get eg ekki verið samdóma henni um að fella burt ákvæðið um að eins megi kaupa 3. flokks bankavaxtabréf. — En eg er á móti frv. í heild sinni. Nú. er nýlega búið að selja bankaskuldabréf fyrir 2 milj. kr.; landsjóður hefir þannig aukið ábyrgð sína fyrir landsbankann um 2 milj. kr. Eg var með þessu frv. áður, en þegar landsbankinn nú hefir fengið þessar 2 milj., er öðru máli að gegna og síður ástæða til að útvega nýtt fé. Eg efast að vísu ekki um að bankinn myndi nota þetta fé vel. En eg álít að þessi aðferð sé ekki hættulaus, því eg álít að þessi bankavaxtabréf geti ekki orðið til á annan hátt en þann, að ný hús verði bygð til þess að veðsetja bankanum. Og eg lít svo á, að fyrir hverjar þúsund kr., sem bankinn lánaði til þeirra hluta, yrði að, borga meir en því nemur út úr landinu. Nú hlýtur að verða mjög lítið um lán út á aðrar fasteignir t. d. jarðir, því flestar jarðir eru veðsettar; það er því eini vegurinn að bæta við húsin, og eg fyrir mitt leyti vil ekki örfa til þess, því eg álít að það hafi í för með sér mikla hættu á því að menn hleypi sér í of miklar bankaskuldir og þar að auki skuldir við útlenda viðskiftamenn.