25.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (677)
53. mál, sóknargjöld
Steingrímur Jónsson:
Eg er einn af flutningsmönnum þessa frumv., og er því þessvegna meðmæltur, að það gangi gegnum þingið, og verði að lögum. Síðan lögin frá 1897 voru samþykt og gengu í gildi, hefir það sýnt sig, hve gjöld til presta og kirkna voru óréttlát. Raddirnar hafa verið sérlega háværar í þessu máli. Gjölsdum til kirkna er svo varið, að þau eru óhæfilega margbrotin, og sú niðurjöfnun, sem nú á sér stað, óhafandi.
Háttv. þm. G.-K. tók það fram, að hann vildi ekki að málið væri slitið út úr sambandi sínu við önnur skattamál landsins. En þetta álít eg að sé ekki rétt. Þegar milliþinganefndin í skattamálum var kosin á síðasta þingi, þá var hún alls ekki kosin með þetta mál fyrir augum, en þessari tillögu var aðeins hnýtt við. Og hitt, að málið komi mönnum á óvart, hygg eg ekki að geti verið, bæði af því, að málið hefir legið fyrir þinginu áður, og eins af því, að það hefir verið mikið rætt. Og eg býst við að þetta sé ekki aðalatriðið fyrir háttv. síðasta ræðumanni, heldur hitt, að hægt verði að koma prestum beint á landsjóð. Eg álít að vísu að það eigi að breyta gjöldum til presta, en eg álít ekki að það eigi að afnema þan. Nú er orðinn mjög stór flokkur manna með aðskilnaði ríkis og kirkju, og meiri hluti presta virðist vera með þessum skilnaði. Þjóðin hefir tekið í sama strenginn, en þá verða þó kirkjugjöldin að vera bein gjöld. Sami háttv. þm. gat þess, að nefskattur væri æfinlega ranglátur. Þetta er að sumu leyti rangt, og að sumu leyti rétt. Frá sjónarmiði hugsjónamannsins er nefskattur sá réttlátasti skattur, eins og hann líka er sá elzti skattur, og svo lengi, sem allir borgarar standa jafnt að vígi, verður nefskatturinn réttlátastur allra skatta. En kúgun, mismunandi efni, mentun og hæfileikar o. s. frv. hafa breytt svo afstöðu manna á meðal, og þá líka fjárhagsástæðum, að allir geta ekki goldið jafnt; þessvegna verður hár nefskattur ranglátur og ekki hægt að nota hann. Hér er um trúarmálefni að ræða og þá eru allir jafnir, svo þar virðist réttlátt að hafa nefskatt, ef hann aðeins ekki er óþyrmilega hár.
Eg get ekki séð, að það sé ófært fullorðnum manni að borga kr. 1.50 til prests og 75 au. til kirkju, eða með öðrum orðum, hér um bil eitt dagsverk. En ef meira þarf að leggja fram, t. d. ef dýr kirkja er reist, þá verður gjaldið sumpart nefskattur, en sumpart skift eftir efnum og ástæðum. Hvað snertir að ófullveðja menn borgi, þá verður það oftast svo í praxis, að foreldrar eða aðrir aðstandendur borga fyrir þá, og þá verða gjöldin ekki hærri en nú er. Það var kvartað yfir að þessir menn hefðu ekki kosningarrétt, þrátt fyrir það að þeir gildu til kirkju og prests, en það eru líka til margir, sem greiða beina skatta til landsjóðs, og hafa þó ekki kosningarrétt til alþingis.