17.02.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

55. mál, dánarskýrslur

Jens Pálsson:

Þar sem þetta frv. hefir þótt athugavert á síðasta þingi, þá bendir það í þá átt, að eitthvað muni vera í því, sem þyrfti nánari umhugsunar eða umbóta, og skal eg því leyfa mér að stinga upp á því, að málið verði látið ganga til 2. umr., og nefnd skipuð í málið.