03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í B-deild Alþingistíðinda. (694)
55. mál, dánarskýrslur
Sigurður Stefánsson:
Frumvarpið er ekki ennþá orðið neitt girnilegra í mínum augum en áður. — Eg vil benda á það, að eftir 1. gr. frumv. getur oft komið fyrir, að prestar megi ekki jarðsetja lík. Hann má það ekki, nema hann fái dánarvottorð frá lækni þeim, er stundaði hinn látna, ef læknir býr í sókninni. En eins og allir vita, kemur það nálega aldrei fyrir, að læknir stundi sjúklinga í banalegunni. Venjulega er læknirinn sóttur; hann skoðar sjúklinginn og stendur ef til vill við að eins nokkrar mínútur og fer svo, en hann stundar hann ekki. — Það hefir verið talað um nytsemi af dánarskýrslum. Mér dettur ekki í hug að neita því, að dánarskýrslur eru nytsamar, en til þess verða þær að vera ábyggilegar, og það verða þær ekki eftir þessu frumvarpi, því að prestar eru ekki færari til að gefa slíkar skýrslur en hverjir aðrir, og verða auk þess að fara eftir sögusögn annara, verða að byggja skýrslurnar á frásögn heimilismanna. Skýrslurnar verða alt af óábyggilegar, og því geta lögin alls ekki náð tilgangi sínum.