03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (699)

55. mál, dánarskýrslur

Steingrímur Jónsson:

Þetta frumv. lá fyrir Alþingi 1907, en var þá felt. eg álít að þetta hafi verið misráðið. Tilgangur frumv. er svo góður, að það á skilið að verða að lögum. Allir hugsandi menn hljóta að vita, að það hefir mikla þýðing að vita um dauða manna og orsakir hans. Það ætti að heimta allar skýrslur þessu viðvíkjandi svo margar og nákvæmar, sem hægt væri. Og þetta ætti að gera ekki sízt nú, þar sem athygli manna er að snúast svo mjög að útrýming ýmsra sjúkdóma, t. d. berklaveiki. Það er alment álit lækna, að ómögulegt sé að stemma stigu fyrir þessháttar sjúkdómum, fyr en hægt er að fá nákvæmar skýrslur um þá. Og eg álít að hægt sé að fá mjög nákvæmar skýrslur að minsta kosti fyrir allmikinn hluta þjóðarinnar, ef þetta frumv. verður að lögum. Það má gera ráð fyrir að framt að 50% landsmanna búi í þeim sóknum, sem læknar eru í, og þar fengjust nákvæmar og áreiðanlegar skýrslur. Og um þær skýrslur, er prestar semdu, er ekki vafi á að þær gætu gefið góðar upplýsingar, ef þær væru notaðar með nokkurri varúð. Þær mundu að minsta kosti verða mjög góður stuðningur, einkum þegar prestar vendust við starfið.

Svo er kostnaðurinn. Háttv. þm. V.-Ísf. hélt því fram að hann mundi nema 3000 kr. Þetta getur ekki náð nokkurri átt. Það er ómögulegt að hann fari fram úr 5—600 kr. Eg gæti hugsað mér að komið gætu um 200 tilfelli, þar sem yrði að sækja lækni, og má búast við að kostnaður við það yrði að jafnaði 3 kr., en hreint ekki meiri. Það yrði samtals 600 kr.

Eg get ekki skilið hvernig lögin gætu verið óþægileg fyrir aðstandendur þeirra, sem deyja. Eg sé ekki hvað það ætti að gera þeim, þó læknir yrði sóttur; en get hinsvegar hugsað mér að það gæti verið stundum óþægilegt eða óviðkunnanlegt, ef læknir væri ekki sóttur.

Það eru allar ástæður, sem mæla með því að frumv. verði samþ., en engar á móti.

Háttv. þm. V.-Skaftf. lét það álit í ljósi, að þessar skýrslur yrðu lítt nýtar og líkti þeim við skýrslurnar um alidýrasjúkdóma. En háttv. þm. hefir ekki tekið eftir því, að hér stendur alt öðruvísi á. Í hinu tilfellinu áttu ólærðir menn í hlut, en hér eiga lærðir læknar að gefa skýrslurnar. Það er ástæðulaust vantraust og að niðra læknastéttinni, að segja slíkt.

Eg vil ennfremur neita öðru sem verið er að segja, sem sé að þær hagfræðisskýrslur, sem samdar eru hér úti um land, séu rangar. Þetta er algerlega rangt. Auðvitað má búast við ýmsum göllum í fyrstu, meðan menn eru óvanir, en þær batna mjög fljótt. Eg veit t. d. hvernig þessu hefir verið varið í Þingeyjarsýslu. Þar vissu menn ekki almennilega í fyrstu hvernig ætti að útfylla hinar og þessar skýrslur, en þeir sýndu góða viðleitni og lærðist fljótt að gefa réttar og góðar skýrslur.

Eg játa að lögin mundu bæta dálitlu við störf presta. Þeir yrðu að bæta við einum dálk í dánarskýrslum sínum og hafa sig við með að komast að því úr hverju menn hafa dáið, en þetta getur varla orðið mikið, því að nú deyja hér á landi fáir svo, að menn þekki eigi dauðameinið.