15.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (73)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Framsögumaður (Sig. Stefánsson):
Fjórar breyt.till. hafa komið fram. Nefndin hefir að vísu ekki haft sem beztan tíma til að bera sig saman um þær, en samt áleit hún ekki þörf á að láta taka málið út af dagskrá, þar eð breyt.till. eru ekki svo mikilsverðar.
Fyrst er breyt.till. á þskj. 471 frá nefndinni. Hún fer fram á það, að stjórninni veitist heimild til að kaupa fyrir byggingarsjóðinn húseign fyrv. ráðherra, H. Hafsteins í Tjarnargötu, til ráðherrabústaðar. Eg vona að háttv. deild sé nefndinni samdóma um það, að það er lítt sæmandi og enda ófært að hafa ekki bústað fyrir ráðherra. Það gæti jafnvel orðið til að fæla menn frá að taka við stöðunni, því prívat-menn hafa ekki svo mikil og góð húsnæði, sem maður í þeirri stöðu þarf að hafa. Eg hygg að deildin muni vera nefndinni samdóma um þetta. Að því er verð hússins snertir, skal eg geta þess, að það er ákveðið eftir virðingarverði þess til brunabóta. Húsið er ekki gamalt og bygt úr góðum efnum og endist því vonandi vel, að minsta kosti næsta mannsaldur. Verði húsið keypt, er því komið í veg fyrir, að þingið fari fyrst um sinn að brjótast í að byggja stærðarhöll fyrir ráðherra, og þykist nefndin því geta hvatt til kaupanna, þó hún á hinn bóginn kannist við, að bezt sé að allar opinberar byggingar séu úr steini. Vextirnir verða að vísu nokkuð meiri en núverandi húsaleigustyrkur ráðherra, en við álítum ekki í slíkt horfandi, þar sem hér er í boði fullvegleg íbúð fyrir hvern ráðherra, er vafalaust verður fullnægjandi um langan tíma. Það mælir einnig með kaupunum, að ekki þarf að borga út nema liðugan helming kaupverðsins, því landið tekur að sér veðskuld, sem á húsinu hvílir og ekki verður gengið eftir að svo stöddu. Eg skal ekki fara fleiri orðum um tillöguna, en vona að deildin taki henni vel.
Þá er viðaukatill. á þskj. 472. Hún fer fram á, að Garðari Gíslasyni séu veittar 4000 kr. til mótorvagnskaupa. Nefndinni barst erindi frá Garðari um þetta, en það komst aldrei svo langt, að hún ákvæði afstöðu sína í þessu máli. Hún rak strax augun í eitt skilyrði sem Garðar setur, er gerði það að verkum að hún vildi leiða málið hjá sér, og það var skilyrðið um, að landið skuldbindi sig til að halda veginum við, svo að stöðugar ferðir geti haldist. Nefndin áleit að ef landið gengi að þessu skilyrði, gæti það orðið til þess, að Garðar gæti komið sér undan endurgreiðslu fjárins, ef svo byði við að horfa. En auðvitað er þetta samningsatriði milli Garðars og stjórnarráðsins, og þarf því í sjálfu sér ekki að vera fjárveitingunni til fyrirstöðu, en stjórnarráðið ætti að fara mjög varlega í að skuldbinda landið nokkurn hlut í þessa átt. Það gæti farið svo, að fyrirtækið yrði svo dýrt, að það borgaði sig ekki, og þá verður að vera svo um hnútana búið, að landið geti ekki beðið neinn fjárhagslegan skaða við það. Hins vegar væri þetta mikilsverð tilraun fyrir samgöngur okkar. Ef það reyndist að nota mætti mótorvagna á vegum okkar, væri mikið unnið fyrir samgöngumál okkar, því að þeir gætu þá ef til vill komið í stað járnbrauta, svo að fresta mætti eða jafnvel sleppa alveg að ráðast í járnbrautarlagningu. Og eins og eg tók fram áðan, er eg háttv. þm. Strand. samdóma um það, að öll nánari skilyrði fyrir fjárveitingunni eru samningamál milli Garðars og stjórnarráðsins, og eg álít stjórnarráðinu treystandi til að gera samningana svo tryggilega úr garði, að Garðar geti ekki smeygt sér undan endurgreiðslu fjárins, ef vagninn reynist ófær. Það er ómögulegt, að taka alt slíkt fram hér í lögunum, það verður að vera á ábyrgð stjórnarráðsins að vel sé um alla hnúta búið í samningunum. Stjórnarráðið hefir skýrar bendingar frá umræðunum hér um það, að gæta þess vel að skuldbinda landsjóð ekki um of, og ætti því ekki að vera það of vaxið. Eg mun því greiða atkvæði með fjárveitingunni.
Þá er viðaukatill. á þskj. 468, við 4. gr. B. III. Er þar farið fram á 400 kr. fjárveitingu til lagaskólans til aukakenslu. Eg verð að álíta að nefndin geti vart synjað um samþykki sitt til þessarar fjárveitingar. Nd. hefir samþykt 800 kr. árlega á næsta fjárhagstímabili til aukakenslu við skólann. Verði það samþykt hér, verður einn ársfjórðungur eftir, sem aukakennara eru engin laun ætluð, nefnilega frá 1. október 1909, til nýjárs. Það er því sanngjarnt að veittar séu 400 kr. til aukakenslu þennan ársfjórðung. Við verðum að gera þær kenslustofnanir sem hér eru, svo vel úr garði sem unt er. Eg fyrir mitt leyti mun greiða atkvæði með þessari fjárveitingu, en um álit annara nefndarmanna er mér ekki kunnugt
Þá er breyt.till. á þskj. 470, við 3. gr. C. 2. e. Hún fer fram á það, að báturinn, sem á að ganga milli Langaness og Hornafjarðar, fari aðeins 2 ferðir til Víkur og Vestmannaeyja í stað 3 ferða, er samþykt var við 2. umræðu. Háttv. þm. V.-Sk. hefir rétt fyrir sér í því, að tillagan er nokkuð ógreinileg; það sést ekki, að athugasemdin, sem hún á að koma í staðinn fyrir, eigi að falla burtu, en auðvitað hlýtur það að vera meiningin. Eg játa að eg er í dálitlum vanda með þessa tillögu. Þegar litið er á samgönguþörf þessara héraða, hversu þau eru útundan, fellur manni þungt, að geta ekki uppfylt allar sanngirniskröfur þeirra í þessu efni, en hinsvegar veit eg ekki, hvort hægt er að koma þrem ferðum fyrir á áætluninni. Þó verð eg að álíta, að áætlunin geti ekki verið fast ákveðin enn, þar sem styrkurinn er enn ekki veittur. Hlutaðeigendur hafa enga vissu um að féð fáist, og væri það því mjög fljótfærnislegt, ef þeir hefðu gert samning um ferðirnar fyrir fram.
Sömuleiðis verð eg að gera ráð fyrir, að þó ferðirnar til Víkur og Vestmanneyja geti ef til vill verið hættulegar, þá hljóti báturinn að vera svo stór og góður, að hann gæti gengið þangað. Eg verð að ætla Austfirðingum þá hagsýni, að þeir sæki ekki um styrk til báts, er sé það kríli, eða svo ófullkominn, að hann geti ekki gengið annað en um Austfirði sjálfa. Geti báturinn gengið um Austfirði, ætti hann líka að geta farið til Víkur og Vestmanneyja. Eg tel rétt að tillagan sé feld; Nd. gæti þá íhugað þetta betur, þegar frumv. kemur þangað.
Skal eg svo ekki fara fleiri orðum um breytingartillögurnar.