15.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (76)
2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909
Framsögumaður (Sig. Stefánsson):
Háttv. 4. kgk. þm. taldi það vogun, að samþykkja fjárveitinguna til mótorvagnstilrauna; landsjóður tapaði ef til vill þessum 4000 kr. En eg fæ ekki betur séð, en að stjórnin geti heimtað tryggingu af manninum, svo að landsjóður ávalt fái fjárupphæðina, ef fyrirtækið ekki hepnast. Aftur á móti er það rétt hjá háttv. 4. kgk. þm., að viðhaldsskyldan á vegunum gæti verið hættuleg, en stjórnarráðið getur búið svo um hnútana — og gjörir sjálfsagt — að landsjóði stafi enginn verulegur kostnaðarauki af henni; hins vegar lái eg »forretningsmanninum« ekkert, þótt hann vilji setja þetta skilyrði í samninginn; hann vill auðvitað komast að sem hagkvæmustum samningi. Eg hefi ekkert um það sagt, hvort mótorvagnarnir geta sparað okkur járnbrautarlagningu eða ekki; um það vitum vér ekkert. En vér viljum auðvitað helzt komast hjá jafnfjárfrekum fyrirtækjum og járnbrautir eru, ef hægt er að fá önnur ódýrari samgöngufæri, sem þó fullnægja þörfum vorum. Þess vegna tel eg sjálfsagt að gjöra tilraun með mótorvagna, og vona því að deildin samþykki tillöguna.