16.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (767)

65. mál, erfðaábúð á kirkjujörðum

Jens Pálsson:

Um leið og eg hefst máls um frumvarp þetta, vil eg geta þess, að mér er fullkomlega ljóst að hér er um vandamál að ræða. Og eg skal ennfremur geta þess, að frumv. er ekki svo vel úr garði gert sem eg hefði viljað. Eg hefði viljað geta hugsað málið lengur og betur, áður en eg bæri það fram; en mér gafst ekki kostur á því, því að það var hvort tveggja, að eg hafði miklar annir áður en á þing kom, og hitt, að síðan hefir verið ærið að starfa að öðrum málum, og lítið um hvíld frá þeim.

Það er augljóst að hér er að gera um mikið vandamál, þegar tekið er tillit til sambands þess við þá miklu spurning, sem er uppi um allan heim, sem sé þá, hver réttur manna sé til afnota sjálfrar jarðarinnar. Þessi mikilsverða spurning er efst á dagskrá siðaðra þjóða, og reynt að komast að þeirri niðurstöðu sem heppilegust geti orðið fyrir lönd og lýði. En eg ætla mér ekki að fara að halda neinn langan fyrirlestur um þetta efni; til þess er eg eigi búinn, enda tel hér eigi stað né tíma til slíks.

Það tek eg að eins fram, að sú er skoðun mín, föst skoðun, sem orðin er að sannfæring, að bezta og langbezta skipulag þessa mikla máls væri það, að láta ríkið, þ. e. að segja mannfélagið, hið opinbera sjálft, eiga og hafa umráð yfir öllu landi, og skipa að öllu fyrir um öll afnot manna af landinu eða jörðunni. Með því móti væri langmest trygging fengin fyrir skynsamlegri meðhöndlun jarðarinnar og jafnaðarfylstum og hagsælustum afnotum af henni fyrir einstaklinga mannfélagsins og mannfélagið alt.

Af því eg er þessarar skoðunar, tel eg lang-æskilegast og affarasælast, að landsjóður (landið) ætti hvert einasta jarðarhundrað á þessu landi, og gæti landsjóður keypt alt landið upp, greiddi eg hiklaust atkvæði með því.

En á þessu bezta, — og frá mínu sjónarmiði langbezta, — er sem stendur, og mun lengi verða, enginn kostur, því landsjóð vantar til þess bolmagnið — getur það ekki — og mun ekki geta það um ófyrirsjáanlega langan tíma.

Næst bezta fyrirkomulagið í þessu efni tel eg það, að hver jörð væri í sjálfs ábúð, og hver ræktaður blettur í sjálfseign. Og vel þætti mér þá skipast, ef hver sá, er jörð tæki til ábúðar á landi þessu, eða land til ræktunar, öðlaðist löglegan rétt á að fá jörð þá, er hann yrkir, keypta, fá eignarráðin.

Að eiga ábúðarjörð sína, eða ræktunarland, gefur hverjum einum mesta og sterkasta hvötina til dugnaðar og atorku í búnaði og jarðrækt. Meðvitundin um að vinna ekki fyrir aðra, heldur fyrir sig og sína, er, eins og kunnugt er, hin öflugusta upphvatning.

Mig hefir einatt tekið sárt andvörp leiguliðanna, sem með ýtrustu árvekni og dugnaði, stundum einyrkjar hlaðnir ómegð, hafa hamast í jarðabótum á annara manna eignum, langt um efni fram, — mér hefir oft, segi eg runnið til rifja andvörp þeirra, er þeir hafa sagt: það er þungt að úthella svitanum og leggja svo hart á sig, og hafa enga von um að manns eigin njóti þess á nokkurn hátt.

Það að öll jörð sé í sjálfseign og sjálfsábúð er vissulega það nœst-bezta skipulag.

Eg játa að vísu, að þetta skipulag er gagnstæði hins skipulagsins, er eg taldi bezt, en eg verð eigi að síður að halda því fram, að hið fyrtalda, þjóðfélagseignin á landinu, sé bezta skipulagið, en þetta síðartalda, sjálfseignin, sé hið næstbezta. Það er er hér sem víðar, að »extrema se tangunt».

Frumvarp þetta er til þess, að ná í eitthvað eða nokkuð af kostum hvors um sig, þessa áminzta »bezta< og »næstbezta», — þó aðeins að því er hinar óseldu kirkjujarðir snertir.

Frumvarpið gengur út á að tryggja landinu umráða- og eignarétt yfir jörðunum í hvert sinn er þær losna úr erfðaábúð ættar, og landsjóður nýtur þá einnig þess, ef jörðin hefir verið bætt eða hækkað í verði, því að lögleigan hækkar þá að sama skapi. En jafnframt er ábúanda hverjum trygt það, að niðjar hans, maður frá manni, fái að njóta verka hans á jörðunni, svo lengi sem þeir vilja nota rétt sinn.

Meðan eg var á þingi 10 ára tímabilið næsta á undan því 10 ára tímabili, sem nú síðast er liðið, var oft farið fram á það, að þingið gæfi heimild til að selja eina og eina jörð. Eg dróst með í fyrstu; var þá ekki búinn að átta mig á því, hverja stefnu bæri að taka í þeim efnum. En seinna varð eg á móti öllum slíkum jarðasölum. Svo að það er ekki nýlunda, þó að eg sé á móti hópasölu jarða án nokkurrar tryggingar fyrir varanlegri sjálfsábúð. — Það hlýtur að vera til hagkvæmara fyrirkomulag, en að fleygja frá sér fjölda jarða, án þess að hafa nokkra trygging fyrir því, að þær haldi áfram að vera í sjálfsábúð til lengdar.

Það er engin nýung í sögu landsins, að jarðir séu seldar einstökum mönnum unnvörpum. Ef slík sala er hentug nú, þá hefði hún líka átt að vera það á liðna tímanum. Það hefði átt að sýna sig í stórfeldum framförum og heppilegum afleiðingum yfir höfuð. Það þarf ekki annað en nefna sölu stólsjarða og klaustursjarða. Þær jarðeignir voru seldar í stórhópum. Eg hefi nú ekki gott yfirlit yfir það, hve margar þeirra voru upphaflega seldar ábúendum, en margar þeirra þekki eg nú, sem lengi hafa verið í blátt áfram afar lélegri leiguliðaábúð. Eg hefi ekki kynt mér málið ýtarlega, en eg hygg að þessi sala hafi ekki haft þær afleiðingar, að auka sjálfsábúð til langframa í landinu. Þar á móti hefir hún haft áhrif í þá átt, að halda jarðaverði niðri lengi á eftir. Eins hlýtur að fara nú; almenn sala þjóð- og kirkjujarða hlýtur að verða til þess, að jarðir yfirleitt lækka í verði. Það er altaf svo, að þegar mikið er á boðstólum af einhverri vörutegund, þá lækkar hún í verði. Hitt er annað mál, hvort það er óheppilegt eða ekki, að jarðir lækki í verði. Um það má þrátta, en eg hygg þó að verð jarða hér á landi sé ekki of hátt, og megi ekki við því, að lækka úr því sem er. — Enn er þess að geta, að mér finst lánstraust landsins og fjárhagslegt álit standa á fastari fótum, ef landið sjálft á jarðeignirnar og hefir þar með möguleika til þess, að auðgast við það að jarðir batna og hækka í verði, heldur en ef það fleygir frá sér þessum eignum. Aðrir munu halda því fram, að með vaxandi sjálfsábúð fylgi vaxandi velmegun landsmanna. En fyrst er það, að framhald sjálfsábúðar er ekki trygt í lögunum um sölu kirkjujarða, og svo er hitt, að þó að þær eftir söluna yrðu lengur eða skemur í sjálfsábúð, þá efast eg um að þar með fáist eins sterkar stoðir undir lánstraust landsins eins og með hinu, að landið eigi sig sjálft.

Eg hefi ekki athugað hve mikill hluti allra jarða í landinu er opinber eign, en eg hygg að það sé nálægt því að vera ?—¼ hluti. Nú er alt landið 86189 hundruð að dýrleika. Þá ættu opinberu eignimar að vera nálægt 20000 jarðarhundruð. Það er ekkert smáræði. Ef verð þessarar eignar hækkaði um 100% eða nálægt því, þá væri það ekki lítilfjörlegur gróði fyrir landsjóðinn, að hafa haldið í þær.

Eg hefi ekkert í móti því, að selja þessar jarðir lágu verði og með þægilegum borgunarkjörum, svo framarlega sem trygging væri fyrir því, að þær héldust í sjálfsábúð endalaust. Bezt væri að sú kvöð fylgdi hverri slíkri jörð, að hún mætti aldrei úr sjálfsábúð komast, þá gætu þær orðið afltaugar í líkama þjóðfélagsins.

En ef landið fleygir frá sér þessum jörðum án tryggingar fyrir sjálfsábúð, þá er ekkert unnið, en landið hefir útilokað sig frá þeim möguleika, að sýna fyrirmyndartilhögun á meðferð jarða í landinu.

Alt þetta kom til greina í huga mér, þegar mér datt í hug að koma með þetta frumvarp. Það væri mér ánægjuefni ef álitist gæti að frumv. færi í rétta átt, þannig að það sameinaði þetta tvent, annars vegar að landið misti ekki of mikils, og hinsvegar, að ábúðarrétti einstaklingsins væri hæfilega borgið; með öðrum orðum að það færi í þá eðlilegu átt, sem það á að fara.

Eg ætla ekki að fara fleiri orðum mál þetta við þessa umræðu; vil eigi ofþreyta á því eða þolinmæði háttv. deildarmanna En legg þessa tilraun virðingarfyllst fram til réttlátrar og rækilegrar íhugunar í hinni háttv. deild. Málið þarf vandlegrar athugunar við, og því leyfi eg mér að leggja það til, að nefnd verði skipuð í það, þegar þessari 1. umr. er lokið, helzt 5 manna nefnd.