15.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (77)

2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Jens Pálsson:

Það eru að eins örfá orð, sem ég ætlaði að segja til skýringar. Þetta atriði um viðhaldsskylduna skil eg svo, að hlutaðeigandi vilji tryggja sér fljóta viðgerð á skemdum á vegunum, smávegis skemdum, er snögglega og óvænt geta að hendi borið og gjört þá í svip ófæra vagninum, t. d. niðurhlaup eða brot á vatnsrennum, sem oft er með tré yfir og geta því hæglega skemst. Að bæta slíkar bilanir kostar venjulega lítið, en verður að gjörast tafarlaust, svo umferðin heftist eigi. Hitt getur ekki verið meiningin, að fara að gjöra meiri háttar endurbót á öllum veginum austur. En það getur verið manninum mjög áríðandi, að fljótt sé gert við slíkar smáskemdir.